Þakka áhöfnum fyrir fumlaus viðbrögð

Skipið tók niðri í innsiglingunni við Hörgárgarð.
Skipið tók niðri í innsiglingunni við Hörgárgarð. Ljósmynd/Landsbjörg

Stjórnendur Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum þakka áhöfnum Hugins, Lóðsins og björgunarskipsins Þórs fyrir fumlaus, rétt og örugg viðbrögð í gær þegar nótaskipið Huginn VE55 tók niðri í innsiglingunni við Hörgárgarð gegnt Skansinum í Vestmannaeyjum. 

Í tilkynningu frá Vinnslustöðinni er sagt frá því að fréttir af atburðinum hafi verið misvísandi og er hún rakin ítarlega. 

Huginn var á leið frá kolmunnamiðum við Færeyjar í gær. Venja er að slá af ferð skipa áður en komið er í innsiglinguna og var það gert. Þegar Huginn var kominn inn fyrir Klettsnef, í innsiglinguna, sló skipstjóri aftur af ferð skipsins en þá drapst á aðalvélinni. 

Í tilkynningunni segir að ástæðan fyrir því að vélin hafi drepið á sér sé líklega vegna þess að stjórnbúnaður skrúfu, sem er tölvustýrður, bilaði og í kjölfarið varð þrýstingsfall á smurolíu á gír.

Lítið tjón eftir atvikið

Skipið varð því stjórnlaust í innsiglingunni og stefndi í strand. Skipstjórinn setti sig þá í samband við Vestmannaeyjaáhöfn og Landhelgisgæsluna og óskaði eftir aðstoð. Björgunarskipið Þór og Lóðsinn komu til bjargar. 

Til þess að forða skipinu frá því að stranda við Höreyrargarð varpaði áhöfnin akkeri sem dró mikið úr ferð þess. Skipið tók niðri en tókst að losa sig með hliðarskrúfum og aðstoð björgunarskipa. Þegar áhöfn Hugins og áhafnir Lóðsins og Þórs höfðu náð stjórn á aðstæðum var tekin ákvörðun um að skilja akkeri og akkeriskeðju eftir á vettvangi. 

Lítið tjón varð á Hugin eftir atvikið en málning á botni skipsins er rispuð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.2.25 579,08 kr/kg
Þorskur, slægður 14.2.25 518,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.2.25 346,10 kr/kg
Ýsa, slægð 14.2.25 305,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.2.25 233,75 kr/kg
Ufsi, slægður 14.2.25 276,38 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 14.2.25 435,51 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.2.25 Friðrik Sigurðsson ÁR 17 Þorskfisknet
Þorskur 14.650 kg
Samtals 14.650 kg
15.2.25 Sólrún EA 151 Lína
Þorskur 5.065 kg
Ýsa 1.268 kg
Steinbítur 491 kg
Hlýri 30 kg
Keila 2 kg
Samtals 6.856 kg
15.2.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 2.279 kg
Þorskur 588 kg
Keila 128 kg
Steinbítur 50 kg
Hlýri 44 kg
Karfi 13 kg
Samtals 3.102 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 14.2.25 579,08 kr/kg
Þorskur, slægður 14.2.25 518,89 kr/kg
Ýsa, óslægð 14.2.25 346,10 kr/kg
Ýsa, slægð 14.2.25 305,04 kr/kg
Ufsi, óslægður 14.2.25 233,75 kr/kg
Ufsi, slægður 14.2.25 276,38 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Gullkarfi 14.2.25 435,51 kr/kg
Litli karfi 22.10.24 15,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

15.2.25 Friðrik Sigurðsson ÁR 17 Þorskfisknet
Þorskur 14.650 kg
Samtals 14.650 kg
15.2.25 Sólrún EA 151 Lína
Þorskur 5.065 kg
Ýsa 1.268 kg
Steinbítur 491 kg
Hlýri 30 kg
Keila 2 kg
Samtals 6.856 kg
15.2.25 Litlanes ÞH 3 Línutrekt
Ýsa 2.279 kg
Þorskur 588 kg
Keila 128 kg
Steinbítur 50 kg
Hlýri 44 kg
Karfi 13 kg
Samtals 3.102 kg

Skoða allar landanir »