Landhelgisgæslan hvetur til aðgæslu

Búast má við hárri ölduhæð, áhlaðanda og töluverðum vindi. Landhelgisgæslan …
Búast má við hárri ölduhæð, áhlaðanda og töluverðum vindi. Landhelgisgæslan hvetur eigendur báta og skipa að huga vel að þeim. mbl.is/Óskar Pétur Friðriksson

„Landhelgisgæslan hvetur eigendur skipa og báta til að huga vel að þeim vegna þess veðurs sem gengur yfir landið. Þrátt fyrir að nú sé smástreymt má gera ráð fyrir að áhlaðandi vegna ölduhæðar geti haft áhrif í einhverjum höfnum og að þar geti myndast ókyrrð og súgur,“ segir Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar, spurður hvort stofnunin hafi veitt sjófarendum ráðleggingar vegna veðurofsans sem mun ganga yfir landið.

Verður einhver sérstök viðbragðsstaða vegna veðursins?

„Viðbragð Landhelgisgæslunnar er hefðbundið. Varðskipið Þór er á sjó og við erum með, flugvél og tvær þyrlur til taks. Þyrlusveitin hefur sinnt einu verkefni það sem af er degi en sveitin fór til Vestmannaeyja og sótti sjúkling sem þurfti að komast á sjúkrahús í Reykjavík. Vegna veðurs gaf sjúkraflugvél verkefnið frá sér. Þyrla LHG lenti á Hamrinum í Eyjum,“ segir Ásgeir.

Sjólagsspá Vegagerðarinnar sýnir töluverða ölduhæð þegar líður á kvöld.
Sjólagsspá Vegagerðarinnar sýnir töluverða ölduhæð þegar líður á kvöld. Skjáskot

Samkvæmt sjólagsspá Vegagerðarinnar er gert ráð fyrir hækkandi ölduhæð eftir því sem líður á kvöldið og má búast við að hún fari í 10 til 12 metra suðvestur af landinu í kvöld.

Þá hefur Veðurstofa Íslands þegar vakið athygli á því að það sé von á vaxandi ölduhæð og miklum áhlaðanda við Suðurland, Faxaflóa og Suðausturland.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.3.25 561,51 kr/kg
Þorskur, slægður 16.3.25 617,61 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.3.25 308,81 kr/kg
Ýsa, slægð 16.3.25 266,53 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.3.25 232,02 kr/kg
Ufsi, slægður 16.3.25 259,24 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 9.3.25 219,00 kr/kg
Gullkarfi 16.3.25 190,38 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 5.421 kg
Þorskur 2.977 kg
Ýsa 941 kg
Skarkoli 42 kg
Hlýri 36 kg
Langa 5 kg
Keila 3 kg
Samtals 9.425 kg
16.3.25 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 4.872 kg
Þorskur 922 kg
Keila 31 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 5.842 kg
16.3.25 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 4.918 kg
Ýsa 253 kg
Karfi 34 kg
Samtals 5.205 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.3.25 561,51 kr/kg
Þorskur, slægður 16.3.25 617,61 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.3.25 308,81 kr/kg
Ýsa, slægð 16.3.25 266,53 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.3.25 232,02 kr/kg
Ufsi, slægður 16.3.25 259,24 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 30.1.25 16,00 kr/kg
Undirmálsufsi, slægður 21.1.25 249,00 kr/kg
Djúpkarfi 9.3.25 219,00 kr/kg
Gullkarfi 16.3.25 190,38 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.3.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína
Steinbítur 5.421 kg
Þorskur 2.977 kg
Ýsa 941 kg
Skarkoli 42 kg
Hlýri 36 kg
Langa 5 kg
Keila 3 kg
Samtals 9.425 kg
16.3.25 Sandfell SU 75 Lína
Steinbítur 4.872 kg
Þorskur 922 kg
Keila 31 kg
Skarkoli 17 kg
Samtals 5.842 kg
16.3.25 Fanney EA 48 Línutrekt
Þorskur 4.918 kg
Ýsa 253 kg
Karfi 34 kg
Samtals 5.205 kg

Skoða allar landanir »