Engu svarað um útsvarsgreiðslur

Ráðuneytið veit ekkert um útsvar strandveiðimanna.
Ráðuneytið veit ekkert um útsvar strandveiðimanna. mbl.is/Alfons

Atvinnuvegaráðherra gat engu svarað um útsvarsgreiðslur handhafa strandveiðileyfa, en spurt var á Alþingi hve háar útsvarsgreiðslur strandveiðimenn hefðu innt af hendi til sveitarfélaga árin 2016 til 2024.

Er því borið við að málefnasvið sem tengist lögum um tekjustofna sveitarfélaga heyri ekki undir atvinnuvegaráðuneytið og því engar upplýsingar um útsvarsgreiðslur að finna á þeim bænum.

„Ég lagði fram fyrirspurnina til þess að fá fram upplýsingar um áhrif, í þessu tilfelli af strandveiðum, á byggðir landsins og atvinnuvegaráðuneytinu var það um megn að afla sér upplýsinga um það og þeirra gagna sem málið varða,“ segir Vilhjálmur Árnason alþingismaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við Morgunblaðið.

Skammur frestur

„Þetta kom mér mjög á óvart þar sem ráðuneytið er að leggja til breytingar á ýmsum lögum sem varða sjávarútveg, þ.m.t. á strandveiðikerfinu, eignarhaldi í sjávarútvegi, skilgreiningum á tengdum aðilum í sjávarútvegi og veiðigjöldunum, sem hafa munu mikil áhrif á sjávarútveginn og byggðir landsins þar með,“ segir Vilhjálmur.

„Það hafa verið gerðar athugasemdir af fulltrúum sjávarbyggða í landinu við það hve skammur frestur er gefinn til umsagna um veiðigjaldafrumvarpið og kvartað er yfir skorti á gögnum. Þeir fá ekki tíma til að meta áhrifin af þessu á sínar byggðir og það er ekkert gert með það hjá stjórnvöldum,“ segir hann.

Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu í dag. Einnig má nálgast hana án endurgjalds í Mogganum, nýju appi Morgunblaðsins og mbl.is.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.5.25 487,54 kr/kg
Þorskur, slægður 21.5.25 605,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.5.25 397,92 kr/kg
Ýsa, slægð 21.5.25 398,16 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.5.25 196,17 kr/kg
Ufsi, slægður 21.5.25 259,49 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 21.5.25 249,21 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.5.25 Björn Jónsson ÞH 345 Handfæri
Þorskur 762 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 767 kg
22.5.25 Maggi í Tungu BA 177 Handfæri
Þorskur 754 kg
Samtals 754 kg
22.5.25 Guðrún Ragna ÞH 67 Handfæri
Þorskur 643 kg
Samtals 643 kg
22.5.25 Ósk ÞH 54 Handfæri
Þorskur 539 kg
Karfi 19 kg
Ýsa 14 kg
Ufsi 5 kg
Keila 1 kg
Samtals 578 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 21.5.25 487,54 kr/kg
Þorskur, slægður 21.5.25 605,24 kr/kg
Ýsa, óslægð 21.5.25 397,92 kr/kg
Ýsa, slægð 21.5.25 398,16 kr/kg
Ufsi, óslægður 21.5.25 196,17 kr/kg
Ufsi, slægður 21.5.25 259,49 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 21.5.25 249,21 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

22.5.25 Björn Jónsson ÞH 345 Handfæri
Þorskur 762 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 767 kg
22.5.25 Maggi í Tungu BA 177 Handfæri
Þorskur 754 kg
Samtals 754 kg
22.5.25 Guðrún Ragna ÞH 67 Handfæri
Þorskur 643 kg
Samtals 643 kg
22.5.25 Ósk ÞH 54 Handfæri
Þorskur 539 kg
Karfi 19 kg
Ýsa 14 kg
Ufsi 5 kg
Keila 1 kg
Samtals 578 kg

Skoða allar landanir »