Vísitala minnkar en mikið af stórum þorski

Nóg er af stórum þorski á Íslandsmiðum þó stofnvísitalan lækkar …
Nóg er af stórum þorski á Íslandsmiðum þó stofnvísitalan lækkar milli ára. mbl.is/Sigurður Bogi

Stofnvísitala þorsks er aðeins lægri í ár en í fyrra samkvæmt niðurstöðum stofnmælingar botnfiska á Íslandsmiðum sem fram fór 27. febrúar til 23. mars. Fjöldavísitala þorsks 25 til 45 sentímetra var undir meðaltali en líkt og undanfarin ár var vísitala þorsks yfir 70 sentímetra yfir meðaltali.

Þetta kemur fram í færslu á vef Hafrannsóknastofnunar þar sem greint er frá því að út sé komin skýrsla um framkvæmd og niðurstöður mælingarinnar og þær bornar saman við fyrri ár en verkefnið hefur verið framkvæmt með sambærilegum hætti ár hvert frá 1985.

Fram kemur að stofnvísitala þorsks hækkaði nær samfellt árin 2007-2017, fyrst og fremst vegna aukins magns af stórum þorski. Eftir hámarkið 2017 hefur vísitalan lækkað.

Magafylli þorsks var nálægt meðaltali og loðna var rúmlega helmingur af fæðu þorsks af öllum stærðarflokkum. Loðna fannst helst í fæðu þorsks út af Vestfjörðum og Húnaflóa.

Einnig loðna í ýsunni

Þá lækkar stofnvísitala ýsu milli ára en hún hefur verið mjög há undnafarin ár eftir mikla hækkun frá árinu 2016, lægst var hún árin 2010 til 2016.

Meira var af loðnu í mögum millistórrar ýsu en minna í mögum stærstu ýsunnar samanborið við fyrri ár. Loðna fannst helst í mögum út af Vestfjörðum.

Stofnvísitala ufsa hækkar milli ára, en litlar breytingar voru á vísitölum steinbíts, skarkola og gullkarfa. „Þó var vísitala 10-15 cm gullkarfa yfir meðallagi. Vísitölur keilu og löngu voru þær hæstu frá upphafi mælinga og einnig hefur vísitala skötusels hækkað á síðustu árum,“ segir í færslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.25 520,04 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.25 673,75 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.25 437,70 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.25 261,37 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.25 240,77 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.25 275,72 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.25 254,58 kr/kg
Litli karfi 12.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

12.5.25 Jón Jak ÞH 8 Handfæri
Þorskur 837 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 847 kg
12.5.25 Hólmi ÞH 56 Handfæri
Þorskur 533 kg
Ýsa 33 kg
Samtals 566 kg
12.5.25 Ólsen NK 77 Handfæri
Þorskur 325 kg
Steinbítur 6 kg
Samtals 331 kg
12.5.25 Skjótanes NS 66 Handfæri
Þorskur 746 kg
Samtals 746 kg
12.5.25 Nökkvi NK 39 Handfæri
Þorskur 826 kg
Samtals 826 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 12.5.25 520,04 kr/kg
Þorskur, slægður 12.5.25 673,75 kr/kg
Ýsa, óslægð 12.5.25 437,70 kr/kg
Ýsa, slægð 12.5.25 261,37 kr/kg
Ufsi, óslægður 12.5.25 240,77 kr/kg
Ufsi, slægður 12.5.25 275,72 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 12.5.25 254,58 kr/kg
Litli karfi 12.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

12.5.25 Jón Jak ÞH 8 Handfæri
Þorskur 837 kg
Ufsi 10 kg
Samtals 847 kg
12.5.25 Hólmi ÞH 56 Handfæri
Þorskur 533 kg
Ýsa 33 kg
Samtals 566 kg
12.5.25 Ólsen NK 77 Handfæri
Þorskur 325 kg
Steinbítur 6 kg
Samtals 331 kg
12.5.25 Skjótanes NS 66 Handfæri
Þorskur 746 kg
Samtals 746 kg
12.5.25 Nökkvi NK 39 Handfæri
Þorskur 826 kg
Samtals 826 kg

Skoða allar landanir »