„Já, það er bara algjört mok. Ég hef aldrei upplifað svona veiði í jafn fá net. Ég bara skil ekki þessa ráðgjöf miðað við veiðina sem er á miðunum. Það er bara svoleiðis,“ segir Ingólfur H. Árnason grásleppusjómaður í Morgunblaðinu í dag um vertíð ársins. Hann gerir út grásleppubátinn Ásdísi ÞH-136 frá Húsavík og á að baki fleiri áratuga reynslu á grásleppuveiðum.
Hann lýsir miklum áhyggjum af stöðu grásleppuveiða bæði vegna ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar, kvótasetningar og umgjörðar veiðanna almennt. „Að byggja grásleppuráðgjöf á því sem menn fá i togararalli stenst enga skoðun. Þetta er bara ekki viðurkennd aðferð og það er útilokað að þeir viti hversu mikil grásleppa er í sjónum. Það er allavega mín skoðun.“
Í lok mars tilkynnti Hafrannsóknastofnun að stofnunin legði til að ekki skyldi veiða meira en 2.760 tonn af grásleppu þetta vorið og er það 32% minni afli en stofnunin ráðlagði vegna vertíðar síðasta árs.
„Það kom mér verulega á óvart að það skyldi verða niðurskurður, ég hefði haldið að eðlilegt væri að bæta við um tvö þúsund tonnum miðað við úthlutunina í fyrra,“ segir Ingólfur, sem kveðst eiga um níu tonn eftir óveidd af þeim 35 tonnum sem hann fékk úthlutað, en grásleppan var kvótasett með lögum á síðasta ári.
Afleiðing samdráttar í ráðgjöfinni hefur verið að tvö störf hurfu, en Ingólfur hefur alla jafna haft þrjá sjómenn með sér á vertíð. „Síðustu vertíð landaði ég 103 tonnum og nýtti þá ekki nema hluta af dögunum.“
Hvað verðurðu lengi að ná kvótanum sem eftir er?
„Það fer auðvitað eftir því hversu mörg net maður setur í hafið en ætli þetta séu ekki einhverjir átta dagar eftir að þessi bræla er yfirstaðin.“
Staða margra er mjög slæm vegna samdráttarins að sögn Ingólfs, enda þurfa veiðar að standa undir kostnaði. „Ég á eftir að sjá hvernig þetta verður hjá bátum sem fengu úthlutað þremur eða fimm tonnum. Ég get ekki ímyndað mér að þeir séu að fara að sækja þetta. Þetta fer líklega í einhverjar tegundatilfærslur eða eitthvað svoleiðis rugl og kemur aldrei í land. Þá taka menn ufsa á móti.“
Telur hann líklegt að margir sem lítið fengu af veiðiheimildum leigi frá sér eins stóran hluta og heimilt sé. „Það er ef einhverjir vilja leigja, annars brennur þetta bara inni. Það er enginn að starta í einhverju úthaldi til að sækja fimm tonn.“
Hann segir veiðunum hafa verið kollsteypt þegar byrjað var að skylda grásleppusjómenn til að skila heilum grásleppum í land. Bendir hann á að regluverk sem sett var um hvernig skyldi vinna grásleppu og grásleppuhrogn hafi verið verið svo strangt að einyrkjar hafi einfaldlega ekki haft bolmagn í að uppfylla þær kröfur sem gerðar séu. Þannig fækkaði kaupendum verulega og eru þeir langtum færri en fyrir 20 árum þegar innlendur markaður var fyrir aflann.
„Ég seldi Ora í mörg ár tunnur en svo hættu þeir að standa í grásleppu. Þá fór ég í Fiskkaup og svo hættu þeir. Síðan fór ég að selja fyrirtæki í Stykkishólmi og hann hringdi í mig daginn sem ég var að fara að leggja og sagðist ekki getað tekið af mér, en vísaði mér á einn enn.“
Þá segir Ingólfur enga vöruþróun hafa átt sér stað með grásleppuna, sem á árum áður þótti skila hágæða kavíar. „Verðlagningin er glórulaus. Þorskverð hefur rokið upp en verðið á grásleppunni er lægra en það var fyrir fimm árum.
Markaðurinn stýrði þessu alltaf, ef mikið var veitt eitt árið hrundi markaðurinn og færri veiddu árið á eftir og þannig þróaðist þessi veiði. Svo fer allt í skítinn með þessu stjórnunarkerfi stjórnvalda og Hafró. Búið að eyðileggja þennan markað og veiðarnar. Allt umhverfi þessara veiða er bara komið niður í svaðið.“
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.5.25 | 506,20 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.5.25 | 585,29 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.5.25 | 406,58 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.5.25 | 355,92 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.5.25 | 201,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.5.25 | 257,35 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.5.25 | 230,96 kr/kg |
Litli karfi | 13.5.25 | 10,00 kr/kg |
19.5.25 Atlas AK 60 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 714 kg |
Samtals | 714 kg |
19.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 5.819 kg |
Skarkoli | 459 kg |
Ýsa | 281 kg |
Þorskur | 164 kg |
Samtals | 6.723 kg |
19.5.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.769 kg |
Ýsa | 1.051 kg |
Steinbítur | 585 kg |
Keila | 292 kg |
Karfi | 10 kg |
Samtals | 3.707 kg |
19.5.25 Hafborg EA 152 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 17.843 kg |
Skarkoli | 9.575 kg |
Þorskur | 1.918 kg |
Ýsa | 400 kg |
Sandkoli | 228 kg |
Þykkvalúra | 220 kg |
Samtals | 30.184 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.5.25 | 506,20 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.5.25 | 585,29 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.5.25 | 406,58 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.5.25 | 355,92 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.5.25 | 201,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.5.25 | 257,35 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.5.25 | 230,96 kr/kg |
Litli karfi | 13.5.25 | 10,00 kr/kg |
19.5.25 Atlas AK 60 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 714 kg |
Samtals | 714 kg |
19.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 5.819 kg |
Skarkoli | 459 kg |
Ýsa | 281 kg |
Þorskur | 164 kg |
Samtals | 6.723 kg |
19.5.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.769 kg |
Ýsa | 1.051 kg |
Steinbítur | 585 kg |
Keila | 292 kg |
Karfi | 10 kg |
Samtals | 3.707 kg |
19.5.25 Hafborg EA 152 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 17.843 kg |
Skarkoli | 9.575 kg |
Þorskur | 1.918 kg |
Ýsa | 400 kg |
Sandkoli | 228 kg |
Þykkvalúra | 220 kg |
Samtals | 30.184 kg |