Bilun kom upp í öðrum rannsóknarleiðangri hafrannsóknaskipsins Þórunnar Þórðardóttur HF 300 þegar skipið var við síldarmælingar í Kolluál, vestan við Snæfellsnes. Skipið hafði þá nýlokið sínu fyrsta togararalli í lok mars.
Hefur Þórunn legið um kyrrt í höfn Hafnarfjarðar síðan bilunin kom upp.
Að sögn Þorsteins Sigurðssonar, forstjóra Hafrannsóknastofnunar, má rekja bilunina til hugbúnaðarvillu sem leiddi til þess að vélarkerfi skipsins sló út.
„Það er auðvitað ekki mikið öryggi í því,“ segir Þorsteinn í samtali við Morgunblaðið og bætir við að tekin hafi verið ákvörðun um að sigla skipinu til baka.
Þrátt fyrir bilunina náðist að klára mælingarnar. Rannsóknaskipið Árni Friðriksson var kallað til og tók við verkefninu án frekari tafa.
Þá segir Þorsteinn að sérfræðingur frá vélarframleiðandanum, The Anglo Belgian Corporation (ABC) í Belgíu, hafi verið fenginn til landsins og sinnt viðgerð á þeim hluta búnaðarins sem olli trufluninni.
Að lokum bætir hann við að Þórunni hafi verið komið í lag í síðustu viku og áformað sé að hún haldi aftur til hafs fljótlega eftir páska, að þessu sinni í rækjurannsóknir, einnig í Kolluál.
Þórunn Þórðardóttir HF 300 var afhent Hafrannsóknastofnun 12. mars síðastliðinn og er skipið nefnt eftir Þórunni Þórðardóttur, sem var fyrst íslenskra kvenna til að mennta sig á sviði sjávarlíffræði.
Tók skipið við af Bjarna Sæmundssyni, sem hafði þjónað hafrannsóknum við Ísland í tæp 55 ár en hefur nú verið seldur til Noregs.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.5.25 | 476,51 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.5.25 | 590,38 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.5.25 | 453,05 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.5.25 | 352,96 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.5.25 | 175,53 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.5.25 | 188,47 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.5.25 | 256,39 kr/kg |
Litli karfi | 22.5.25 | 11,00 kr/kg |
22.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 10.642 kg |
Ýsa | 1.081 kg |
Steinbítur | 986 kg |
Langa | 291 kg |
Hlýri | 238 kg |
Ufsi | 131 kg |
Keila | 92 kg |
Skarkoli | 61 kg |
Karfi | 15 kg |
Samtals | 13.537 kg |
22.5.25 Gísli EA 221 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 781 kg |
Samtals | 781 kg |
22.5.25 Kvikur EA 20 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 795 kg |
Samtals | 795 kg |
22.5.25 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet | |
---|---|
Ufsi | 2.772 kg |
Þorskur | 1.182 kg |
Karfi | 59 kg |
Samtals | 4.013 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 22.5.25 | 476,51 kr/kg |
Þorskur, slægður | 22.5.25 | 590,38 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 22.5.25 | 453,05 kr/kg |
Ýsa, slægð | 22.5.25 | 352,96 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 22.5.25 | 175,53 kr/kg |
Ufsi, slægður | 22.5.25 | 188,47 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 22.5.25 | 256,39 kr/kg |
Litli karfi | 22.5.25 | 11,00 kr/kg |
22.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 10.642 kg |
Ýsa | 1.081 kg |
Steinbítur | 986 kg |
Langa | 291 kg |
Hlýri | 238 kg |
Ufsi | 131 kg |
Keila | 92 kg |
Skarkoli | 61 kg |
Karfi | 15 kg |
Samtals | 13.537 kg |
22.5.25 Gísli EA 221 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 781 kg |
Samtals | 781 kg |
22.5.25 Kvikur EA 20 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 795 kg |
Samtals | 795 kg |
22.5.25 Þorleifur EA 88 Þorskfisknet | |
---|---|
Ufsi | 2.772 kg |
Þorskur | 1.182 kg |
Karfi | 59 kg |
Samtals | 4.013 kg |