Rannsókn Matvælastofnunar (MAST) vegna meints ólöglegs fiskeldis veiðifélags á Suðurlandi er langt á veg komin, að sögn Karls Steinar Óskarssonar, deildarstjóra fiskeldis hjá stofnuninni. MAST greindi frá því í síðustu viku að fiskeldi á Suðurlandi væri til skoðunar því að í ljós hefði komið, í kjölfar ábendingar, að það hefði hvorki starfs- né rekstrarleyfi.
MAST lagði fyrr í mánuðinum þriggja m.kr. stjórnvaldssekt á annað veiðifélag, Veiðifélag Eystri-Rangár. Karl Steinar segir málin þó ekki sambærileg og því sé ekki von á álagningu stjórnvaldssektar á það veiðifélag sem nú er til rannsóknar hjá MAST.
„Það er ekki hægt að leggja á stjórnvaldssekt fyrir það að vera með ólöglegt fiskeldi. Það er hægt að leggja á slíka sekt ef þú flytur seiði í stöð sem er ekki með leyfi. Lögin taka ekki vel á þessu að okkar mati,“ sagði Karl Steinar í samtali við blaðið. Í máli Veiðifélags Eystri-Rangár sem lauk með álagningu stjórnvaldssektar voru seiði flutt frá seiðastöð sem var með leyfi í aðra seiðastöð sem ekki var með leyfi.
Karl Steinar segist ekki telja að brotum af þessu tagi fari fjölgandi. Hann telur að veiðifélagið sem nú sé til rannsóknar hafi framið meint brot af gáleysi, félagið hafi ekki vitað að sækja þyrfti um leyfi frá MAST og Umhverfis- og orkustofnun til að vera með fiskeldi. Í máli Veiðifélags Eystri-Rangár vissu þeir sem fluttu seiðin betur, að sögn Karls Steinars.
Lögum samkvæmt ber að loka stöðinni þar sem meint brot áttu sér stað í því máli sem nú er til rannsóknar. Fiskistofa fer með eftirlit með því hvort seiðum sé sleppt úr ólöglegu fiskeldi í ár á Íslandi. MAST hefur gert Fiskistofu viðvart um málið sem nú er til rannsóknar.
Guðni Magnús Eiríksson, sviðsstjóri lax- og silungsveiðisviðs hjá Fiskistofu, segir ekki heimilt að sleppa seiðum úr fiskeldi í á nema fyrir liggi fiskræktunaráætlun sem sé skoðuð af fiskifræðingum og svo í kjölfarið staðfest af Fiskistofu.
Ef veiðifélag sleppir seiðum í á eða fer í aðrar fiskræktunaraðgerðir án þess að fiskræktunaráætlun liggi fyrir beinir Fiskistofa þeim tilmælum til veiðifélaga að setja sér áætlun. Fiskistofa hefur ekki gripið til þess að kæra slík brot til lögreglu ef fiskræktunaráætlun er lögð fram síðar eða fiskeldinu er hætt, að sögn Guðna.
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.