Íslenski fiskiskipaflotinn landaði 65.882 tonnum í mars síðastliðnum og er það um 9% meiri afli en í sama mánuði í fyrra. Munar þar mestu um botnfiskafla sem jókst um 23% í 48.620 tonn.
Þetta má lesa úr tölum Hagstofu Íslands.
Meðal botnfiskafla munar mestu um þorsk, ýsu og „annan botnfiskafla“ en magn jókst um meira en tvö þúsund tonn í hverjum þessum tegundaflokkum. Myndarleg aukning varð einnig í karfa og ufsa, en illa hefur gengi að ná ufsanum í vetur.
Um 1.800 tonn af flatfiskafla var landað í mars á þessu ári og er það um 18% minna en í sama mánuði í fyrra. Hlutfallslega varð jafn mikill samdráttur í uppsjávarafla en landað var ríflega 14 þúsund tonnum af kolmunna í mars.
Leiðindaveður var í febrúar sem hafði veruleg áhrif á sjósókn margra og því mátti að vissu leiti búast við auknum afla í mars.
Ef litið er til 12 mánaða tímabils frá apríl 2024 til mars 2025 var landað 992 þúsund tonnum sem er 8% minni afli en sama 12 mánaða tímabil á undan. Skýrist samdrátturinn af um hundrað þúsund tonna samdrætti í uppsjávarafla og munar mestu um makríl og síld.
Botnfiskafli jókst á sama tíma um 6% í 429 þúsund tonn. Þar af var þorskur 223 þúsund tonn, ýsa 87 þúsund tonn, karfi 43 þúsund tonn og ufsi 37 þúsund tonn.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 16.5.25 | 472,54 kr/kg |
Þorskur, slægður | 16.5.25 | 588,05 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 16.5.25 | 387,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 16.5.25 | 378,27 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 16.5.25 | 155,05 kr/kg |
Ufsi, slægður | 16.5.25 | 248,86 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 16.5.25 | 238,44 kr/kg |
Litli karfi | 13.5.25 | 10,00 kr/kg |
16.5.25 Ríkey MB 20 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 110 kg |
Ufsi | 16 kg |
Samtals | 126 kg |
16.5.25 Sælaug MB 12 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 388 kg |
Ufsi | 13 kg |
Samtals | 401 kg |
16.5.25 Toppskarfur ÍS 417 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 48 kg |
Steinbítur | 20 kg |
Samtals | 68 kg |
16.5.25 Sæli BA 333 Lína | |
---|---|
Langa | 422 kg |
Þorskur | 115 kg |
Keila | 86 kg |
Hlýri | 81 kg |
Ýsa | 41 kg |
Karfi | 26 kg |
Ufsi | 11 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Samtals | 793 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 16.5.25 | 472,54 kr/kg |
Þorskur, slægður | 16.5.25 | 588,05 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 16.5.25 | 387,79 kr/kg |
Ýsa, slægð | 16.5.25 | 378,27 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 16.5.25 | 155,05 kr/kg |
Ufsi, slægður | 16.5.25 | 248,86 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 16.5.25 | 238,44 kr/kg |
Litli karfi | 13.5.25 | 10,00 kr/kg |
16.5.25 Ríkey MB 20 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 110 kg |
Ufsi | 16 kg |
Samtals | 126 kg |
16.5.25 Sælaug MB 12 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 388 kg |
Ufsi | 13 kg |
Samtals | 401 kg |
16.5.25 Toppskarfur ÍS 417 Sjóstöng | |
---|---|
Þorskur | 48 kg |
Steinbítur | 20 kg |
Samtals | 68 kg |
16.5.25 Sæli BA 333 Lína | |
---|---|
Langa | 422 kg |
Þorskur | 115 kg |
Keila | 86 kg |
Hlýri | 81 kg |
Ýsa | 41 kg |
Karfi | 26 kg |
Ufsi | 11 kg |
Skarkoli | 11 kg |
Samtals | 793 kg |