„Mannskapurinn er klár og skipið okkar góða reynist vel,“ segir Höskuldur Árnason, formaður björgunarsveitarinnar Lífsbjargar í Snæfellsbæ í Morgunblaðinu í dag. Liðsmenn sveitarinnar gera nú allt klárt fyrir strandveiðitímabilið, sem hefst strax eftir mánaðamótin.
Ætla má að nokkuð á annað hundrað strandveiðibátar verði í sumar gerðir út frá höfnum á utanverðu Snæfellsnesi; það er frá Arnarstapa, Rifi og Ólafsvík. Eins og dæmi og saga síðustu ára sýnir og segir fylgir þeirri sjósókn á stundum margvíslegt bras og stundum óhöpp sem sinnt er af björgunarsveitunum, sem nú eru tilbúnar því sem verða vill. Svo er ekki líka úr vegi að ætla að verkefnin verði fleiri í sumar, sbr. að veiðidögum strandveiðibáta hefur verið fjölgað.
Björg, nýtt björgunarskip Lífsbjargar, kom á Snæfellsnes um miðjan október í fyrra. Þetta er spánnýtt skip, smíðað í Finnlandi, sem gengur allt að 32 sjómílur ef vel er slegið í. Tækjabúnaður er af bestu gerð; svo sem nýjasta tækni við leit og björgun, til að mynda hitamyndavél. Vistarverur eru afar góðar og í aðalrými eru fjaðrandi sæti með öryggisbeltum.
„Við erum ánægð með skipið nýja; hve hljóðlátt það er og skríður létt og lipurt á sjónum. Nú í vetur þegar það var nokkuð stíf norðanátt hér úti á Breiðafirðinum fórum við út á skipinu til þess að kanna styrk þess. Þá sigldum við beint upp í bárurnar sem skipið greip mjög léttilega og mannskapurinn fann varla fyrir þessu,“ segir Höskuldur. Hann er að aðalstarfi háseti á Sveinbirni Jakobssyni SH, þekktum dragnótabát úr Ólafsvík, og þekkir hann því vel hvernig allt velkist til alls í sjósókninni á Snæfellsnesi.
Tæplega 30 manns eru í föstum útkallshópi Lífsbjargar; fólk sem nánast allt hefur tekið námskeið Slysavarnafélagsins Landsbjargar fyrir áhafnir björgunarskipa. Þá eru tíu menn úr sveitinni með skipstjórnarréttindi á Björgu – og ber þá að taka fram að margir í þeim hópi eru einmitt sjómenn að aðalstarfi.
„Auðvitað er misjafnt hve oft menn veljast til skipstjórnar. Ég myndi segja að 4-5 séu oftast í þessu hlutverki. Annars er það svo að tilkoma nýja skipsins skóp aukinn áhuga á björgunarsveitarstarfinu. Núna um helgina vorum við með nýliðanámskeið sem tæplega tíu manns sóttu og á hverju ári bætast kannski 2-3 nýir við í sveitina. Að því leyti erum við í mjög góðum málum,“ segir Höskuldur.
Útköll Lífsbjargar á sumri hverju, tengd strandveiðunum, skipta tugum. Mörg eru þau vegna minni háttar atvika; svo sem vélarbilana þannig að draga þarf báta í land. Stundum líka meiðast menn og þurfa bjargir af þeim sökum. Svo mætti áfram telja. Og að hafa björgunarsveitirnar sem bakverði segir formaður Lífsbjargar að strandveiðimenn kunni vel að meta. Félag þeirra hafi stutt vel við kaupin á björgunarskipinu auk þess sem einstaka sjómenn hafi lagt Lífsbjörg lið með fjárframlögum.
„Eitt árið hófust strandveiðarnar með miklum látum, ef svo mætti segja. Þá fengum við fjölda aðstoðarbeiðna í maí en svo komu rólegri tímar. Annað árið var svo mest um að vera í júní,“ segir Höskuldur.
„Allt hafa þetta verið vel viðráðanleg atvik og í þessu öllu finnst mér ég sjá hvað þekking úr Slysavarnaskóla sjómanna skilar sér vel. Menn vita hvernig bregðast skal við hættum; til dæmis ef eldur kemur upp í bátum. Plast er mikill matur fyrir eld og bátar geta fuðrað upp á svipstundu. Sé eldur í skipi eða bát eiga menn alltaf og strax að fara í flotgalla og skjóta út gúmmíbjörgunarbát. Þannig hafa menn líka brugðist við í þeim tilvikum sem ég þekki. Þegar þessi atriði eru á hreinu er til mikils unnið.“
Jafnhliða æfingum á björgunarskipinu nýja hafa Lífsbjargarmenn að undanförnu bætt ýmsu við skipið nýja, svo sem að nettengingar um borð hafa verið styrktar. Aðgengi að gagnalindum í hinum stafræna heimi er mjög þýðingarmikið í öllum aðgerðum, eins og oft hefur sýnt sig. Mest um vert er þó að í áhöfn sé vel þjálfað fólk sem getur brugðist við öllu því sem hent getur.
„Björg er öflugt skip og hraðskreitt. Við erum ekki nema rétt rúman klukkutíma héðan frá Rifi og þvert yfir Breiðafjörðinn að Látrabjargi, þangað sem eru um 40 sjómílur héðan frá Rifi. Nærri bjarginu er fiskislóð sem strandveiðimenn sækja talsvert á. Þá eru strandveiðibátarnir líka talsvert á Búðagrunni hér fyrir sunnan nes,“ segir Höskuldur og bætir við að síðustu:
„Á degi hverjum fylgjumst við svo vel með því hvar fiskibátarnir litlu eru hverju sinni hér á Breiðafirðinum. Svo stillum við hlutunum líka þannig upp að hér heima í Snæfellsbæ sé alltaf tiltækur mannskapur úr björgunarsveitinni ef fara þarf í útkall. Sjálfur verð ég væntanlega mikið hér heima í sumar; vetrarvertíðinni er að ljúka og ég á inni foreldraorlof. Get því stokkið til ef þarf, en vonandi blessast þetta nú allt saman.“
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.5.25 | 506,20 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.5.25 | 585,29 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.5.25 | 406,58 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.5.25 | 355,92 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.5.25 | 201,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.5.25 | 257,35 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.5.25 | 230,96 kr/kg |
Litli karfi | 13.5.25 | 10,00 kr/kg |
19.5.25 Atlas AK 60 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 714 kg |
Samtals | 714 kg |
19.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 5.819 kg |
Skarkoli | 459 kg |
Ýsa | 281 kg |
Þorskur | 164 kg |
Samtals | 6.723 kg |
19.5.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.769 kg |
Ýsa | 1.051 kg |
Steinbítur | 585 kg |
Keila | 292 kg |
Karfi | 10 kg |
Samtals | 3.707 kg |
19.5.25 Hafborg EA 152 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 17.843 kg |
Skarkoli | 9.575 kg |
Þorskur | 1.918 kg |
Ýsa | 400 kg |
Sandkoli | 228 kg |
Þykkvalúra | 220 kg |
Samtals | 30.184 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.5.25 | 506,20 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.5.25 | 585,29 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.5.25 | 406,58 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.5.25 | 355,92 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.5.25 | 201,02 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.5.25 | 257,35 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.5.25 | 230,96 kr/kg |
Litli karfi | 13.5.25 | 10,00 kr/kg |
19.5.25 Atlas AK 60 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 714 kg |
Samtals | 714 kg |
19.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 5.819 kg |
Skarkoli | 459 kg |
Ýsa | 281 kg |
Þorskur | 164 kg |
Samtals | 6.723 kg |
19.5.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Þorskur | 1.769 kg |
Ýsa | 1.051 kg |
Steinbítur | 585 kg |
Keila | 292 kg |
Karfi | 10 kg |
Samtals | 3.707 kg |
19.5.25 Hafborg EA 152 Dragnót | |
---|---|
Steinbítur | 17.843 kg |
Skarkoli | 9.575 kg |
Þorskur | 1.918 kg |
Ýsa | 400 kg |
Sandkoli | 228 kg |
Þykkvalúra | 220 kg |
Samtals | 30.184 kg |