Daníel tekur við forstjórastöðunni

Daníel Jakobsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Arctic Fish á …
Daníel Jakobsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Arctic Fish á Vestfjörðum. mbl.is/Helgi Bjarnason

Arctic Fish hefur ráðið Daníel Jakobsson sem forstjóra frá og með 1. maí, að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá fiskeldisfyrirtækinu. Tekur hann við af Stein Ove Tveiten sem gegnt hefur starfinu um árabil, en hann verður ráðgjafi hjá fyrirtækinu til 1. júní.

Daníel hefur gegnt stjórnunarstöðu hjá Arctic Fish frá árinu 2021 og veitt viðskiptaþróun fyrirtækisins forstöðu. Þá segir í tilkynningunni að hann hafi á þessum tíma „öðlast yfirgripsmikla þekkingu á starfsemi og stefnu fyrirtækisins. Leiðtogahæfileikar hans, sérfræðiþekking og djúpar rætur í samfélaginu á Vestfjörðum gera hann vel til þess fallinn að leiða fyrirtækið í því vaxtarskeiði sem fram undan er hjá Arctic Fish.“

Arctic Fish stundar laxeldi á Vestfjörðum og hefur yfir að ráða samfelldri virðiskeðju, allt frá klaki fiskseiða til sölu afurða. Félagið hefur leyfi til framleiðslu 29.800 tonna á tíu eldisstaðsetningum í fimm fjörðum, þeim Patreksfirði, Tálknafirði, Arnarfirði, Dýrafirði og Ísafjarðardjúpi.

Seiðaeldi félagsins er í Tálknafirði, fóðurmiðstöð á Þingeyri, skrifstofur á Ísafirði og hátæknilaxavinnsla í Bolungarvík.

Arctic Fish rekur laxeldi á Vestfjörðum.
Arctic Fish rekur laxeldi á Vestfjörðum. Ljósmynd/Arctic Fish: Haukur Sigurðsson

Markmið um starfsþróun

„Við erum mjög ánægð með ráðningu Daníels. Laxeldi á Íslandi er enn ung atvinnugrein og lykillinn að áframhaldandi árangri veltur á framúrskarandi starfsemi sem byggir á öflugri dýravelferð, ábyrgri umhverfisstefnu og traustum fjárhag ásamt öryggi og velferð starfsfólks. Daníel hefur víðtæka þekkingu á allri starfsemi fyrirtækisins og verður með starfsstöð á Ísafirði,“ er haft eftir Øyvind Oaland, stjórnarformanni Arctic Fish.

Þá er ákvörðun stjórnar Arctic Fish að ráða úr röðum starfsmanna fyrirtækisins sögð endurspegla markmið um að starfsþróun sé grunnurinn að vexti fyrirtækisins til framtíðar.

„Arctic Fish gegnir mikilvægu hlutverki í atvinnulífi Vestfjarða við framleiðslu á heilsusamlegri fæðu, í sátt við samfélag og umhverfi. Laxeldi hefur þegar markverð áhrif á útflutningstekjur Íslands og mikil tækifæri eru fram undan. Ég er því mjög spenntur að halda áfram á þessari vegferð og þróa enn frekar samkeppnishæfa, framsækna og sjálfbæra starfsemi með öflugum hópi starfsfólks Arctic Fish,“ segir Daníel Jakobsson, nýr forstjóri Arctic Fish, í tilkynningu fyrirtækisins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.5.25 506,20 kr/kg
Þorskur, slægður 19.5.25 585,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.5.25 406,58 kr/kg
Ýsa, slægð 19.5.25 355,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.5.25 201,02 kr/kg
Ufsi, slægður 19.5.25 257,35 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 19.5.25 230,96 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.5.25 Atlas AK 60 Handfæri
Þorskur 714 kg
Samtals 714 kg
19.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 5.819 kg
Skarkoli 459 kg
Ýsa 281 kg
Þorskur 164 kg
Samtals 6.723 kg
19.5.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 1.769 kg
Ýsa 1.051 kg
Steinbítur 585 kg
Keila 292 kg
Karfi 10 kg
Samtals 3.707 kg
19.5.25 Hafborg EA 152 Dragnót
Steinbítur 17.843 kg
Skarkoli 9.575 kg
Þorskur 1.918 kg
Ýsa 400 kg
Sandkoli 228 kg
Þykkvalúra 220 kg
Samtals 30.184 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.5.25 506,20 kr/kg
Þorskur, slægður 19.5.25 585,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.5.25 406,58 kr/kg
Ýsa, slægð 19.5.25 355,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.5.25 201,02 kr/kg
Ufsi, slægður 19.5.25 257,35 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 19.5.25 230,96 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.5.25 Atlas AK 60 Handfæri
Þorskur 714 kg
Samtals 714 kg
19.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 5.819 kg
Skarkoli 459 kg
Ýsa 281 kg
Þorskur 164 kg
Samtals 6.723 kg
19.5.25 Hafrafell SU 65 Lína
Þorskur 1.769 kg
Ýsa 1.051 kg
Steinbítur 585 kg
Keila 292 kg
Karfi 10 kg
Samtals 3.707 kg
19.5.25 Hafborg EA 152 Dragnót
Steinbítur 17.843 kg
Skarkoli 9.575 kg
Þorskur 1.918 kg
Ýsa 400 kg
Sandkoli 228 kg
Þykkvalúra 220 kg
Samtals 30.184 kg

Skoða allar landanir »