„Hættum að láta rugla svona í okkur“

Verkalýðsforinginn skrifaði þessa grein í tilefni af 1. maí.
Verkalýðsforinginn skrifaði þessa grein í tilefni af 1. maí. Samsett mynd/mbl.is/Eyþór/Eggert

Arnar G. Hjaltalín, formaður Drífanda stéttarfélags, gagnrýnir harðlega að umræða um auðlindagjöld snúist nær einvörðungu um atvinnuvegi á landsbyggðinni á sama tíma og aðrar mikilvægar auðlindir landsins séu nýttar án þess að þjóðin fái hlutdeild í arðinum.

Þá segir hann ljóst, þrátt fyrir fögur fyrirheit um að gjaldtakan verði nýtt í uppbyggingu innviða á landsbyggðinni, að fjármunum verði varið í höfuðborgarsvæðið.

Í grein sem hann birti í Eyjafréttum bendir hann á að einblínt sé á sjávarútveg, ferðaþjónustu og laxeldi, en þögn ríki um auðlindir á borð við heitt og kalt vatn, vatnsréttindi og virkjunarkosti sem nýttir eru í orkuframleiðslu.

„Við á landsbyggðinni sjáum ekki krónu af því“

Arnar spyr hvers vegna ríkið leiti ekki gjaldtöku af nýtingu þessara auðlinda, líkt og gert er í tilfelli fiskveiða.

„Það skyldi þó aldrei vera að þeir sem eru háværastir um gjaldtöku af burðarstoðum landsbyggðarinnar eru sjálfir að nýta aðrar auðlindir þjóðarinnar og greiða engan arð af þeim notum,“ skrifar hann.

Nefnir hann sérstaklega Orkuveitu Reykjavíkur sem dæmi um fyrirtæki sem greiði háan arð til eigenda en ekkert auðlindagjald til þjóðarinnar fyrir nýtingu auðlinda.

„Við á landsbyggðinni sjáum ekki krónu af því.“

Af hverju er ekki slíkt hið sama gert með orkuframleiðslu?

Hann skrifar, að er virðist í kaldhæðni, að hann fagni hugmyndum ríkisstjórnarinnar um að notast við viðmiðunarverð erlendis frá við útreikning auðlindagjalda.

„Það hlýtur að verða leitað út fyrir landsteinana til að finna viðmiðunarverð til innheimtu auðlindarentu af orkuframleiðslu OR, HS orku og annarra hlutafélaga sem nýta auðlindirnar okkar,“ skrifar hann og bætir við:

„Þar sem ekki er virkur orkumarkaður á Íslandi er nærtækt að líta til Þýskalands, Frakklands eða Englands til að finna viðmiðunarverð.“

Strandveiðar tryggi ekki byggðafestu

Arnar gagnrýnir einnig umræðuna um að strandveiðar tryggi byggðafestu. Hann dregur í efa að strandveiðar á stöðum þar sem sjómenn séu aðeins til staðar hluta úr ári tryggi raunverulega stöðuga búsetu.

„En sama háværa dauðaþögnin ríkir um aðgengi allra landsmanna að hinum auðlindunum sem nefndar hafa verið hér að ofan. Ekki er beysið aðgengi og afhendingaröryggi á köldu vatni víða um land, dísilrafstöðvar keyrðar vegna skorts á rafmagni,” skrifar hann og nefnir að íbúar á köldum svæðum og fjarri uppsprettum heita vatnsins þurfi að greiða allt að þrefalt hærra verð en íbúar sem búa á heitum svæðum á suðvesturhorninu.

Tekjurnar muni „detta dauðar inn í borgríkið“

Í greininni lýsir hann einnig vonbrigðum sínum með hvernig eigi að ráðstafa frekari gjaldheimtu á borð við kílómetragjald, sem hann segir beinast að landsbyggðinni.

„Mig og fleirum á landsbyggðinni hlýnaði sannarlega um hjartaræturnar þegar tilkynnt var hvernig ætti að verja auðlindagjaldinu af þessari ‚einu‘ auðlind landsins okkar. Nefnilega að byggja upp innviði á landsbyggðinni og þá sérstaklega samgönguinnviði,“ skrifar hann.

„En það kólnaði fljótt þegar maður fór að hugsa út í hvað væntanlegt kílómetragjald ætti að fara í og hver ætti að borga samgönguinnviði eins og 200 milljarða Borgarlínu og Sundabraut á höfuðborgarsvæðinu. Það skyldi þó ekki vera við íbúarnir á landsbyggðinni? Allavega er örugglega ekki ætlunin að auðlindanýtendur eins og Orkuveita Reykjavíkur borgi þá. Hættum að láta rugla svona í okkur.“

Hann segir að þrátt fyrir fögur fyrirheit um að tekjurnar verði notaðar í uppbyggingu á landsbyggðinni þá viti allir að tekjurnar muni „detta dauðar inn í borgríkið“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.25 472,54 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.25 588,05 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.25 387,79 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.25 378,27 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.25 155,05 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.25 248,86 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.25 238,44 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Hlýri 517 kg
Þorskur 506 kg
Langa 330 kg
Keila 284 kg
Steinbítur 73 kg
Ufsi 57 kg
Karfi 50 kg
Samtals 1.817 kg
16.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 4.940 kg
Skarkoli 2.747 kg
Ýsa 654 kg
Þorskur 161 kg
Samtals 8.502 kg
16.5.25 Garri BA 90 Handfæri
Ufsi 26 kg
Samtals 26 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.25 472,54 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.25 588,05 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.25 387,79 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.25 378,27 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.25 155,05 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.25 248,86 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.25 238,44 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Hlýri 517 kg
Þorskur 506 kg
Langa 330 kg
Keila 284 kg
Steinbítur 73 kg
Ufsi 57 kg
Karfi 50 kg
Samtals 1.817 kg
16.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 4.940 kg
Skarkoli 2.747 kg
Ýsa 654 kg
Þorskur 161 kg
Samtals 8.502 kg
16.5.25 Garri BA 90 Handfæri
Ufsi 26 kg
Samtals 26 kg

Skoða allar landanir »