„Mér líður vel með þessa ákvörðun“

Friðbjörn Ásbjörnsson framkvæmdastjóri FISK Seafood kvaddi hátíðlega Gylfa Guðjónsson útgerðarstjóra …
Friðbjörn Ásbjörnsson framkvæmdastjóri FISK Seafood kvaddi hátíðlega Gylfa Guðjónsson útgerðarstjóra og þakkaði honum fyrir framleg sitt. Ljósmynd/FISK Seafood

Gylfi Guðjónsson, útgerðarstjóri FISK Seafood á Sauðárkróki, lét af störfum síðastliðin mánaðarmót. Með því lýkur hálfrar aldar starfsferli hans í sjávarútvegi.

„Mér líður vel með þessa ákvörðun – þetta er orðið gott,“ var haft eftir Gylfa í tilkynningu á vef útgerðarinnar í byrjun maí vegna þessa tímamóta. „Það er orðið tímabært að rýma til fyrir yngra fólki með nýja þekkingu og hugmyndir. Ég stíg bæði sáttur og saddur frá þessu borði og veit að konan mín fagnar líka þessum tímamótum í lífi okkar. Það er auðvitað í leiðinni margs að sakna og þar hef ég ekki síst í huga það frábæra fólk sem ég hef fengið að vinna með í gegnum þennan langa feril.“

Gylfi starfaði í rúman aldarfjórðung á sjó og ríflega jafn lengi í landi og þá í sölu- og markaðsmálum og útgerðarstjórn.

Í tilkynningunni er sagt frá því að Gylfi fæddist 1955 á Ísafirði en flutti þaðan 15 ára gamall ásamt foreldrum og systkinum til Skagastrandar þegar faðir hans, skipstjórinn Guðjón Ebbi, var ráðinn til Skagstrendings. Var faðir hans meðal annars skipstjóri á frystitogaranum Örvari HU sem sagður er hafa verið fyrsti íslenski togarinn þar sem aflinn var flakaður um borð.

Ljósmynd/FISK Seafood

Gylfi og bróðir hans Jonni gerðu báðir eins og föður þeirra og gerðust sjómenn, en Jonni lauk nýverið löngum og farsælum skipstjóraferli hjá FISK Seafood.

Gylfi fór á sjó 16 ára gamall og á ferlinum gekk hann í öll störf nema kokkinn og vélstjórann þar til hann fékk réttindin sín og starfaði eftir það sem stýrimaður og skipstjóri fyrir Skagstrending. Fyrir um tveimur áratugum flutti hann til Sauðárkróks þar sem hann hóf störf sem sölu- og markaðsstjóri FISK Seafood og fljótlega eftir það tók hann tl starfa sem útgerðarstjóri félagsins.

„Gylfi hefur alla tíð reynst okkur mikill happafengur,“ segir Friðbjörn Ásbjörnsson, framkvæmdastjóri FISK Seafood, í tilkynningunni.

„Fyrir utan sína djúpstæðu þekkingu á öllu sem tengist sjávarútveginum er hann einstaklega talnaglöggur rekstrarmaður, með stáltaugar þegar brælir á viðskiptahliðinni og næma tilfinningu fyrir því hvernig veiðunum er best háttað hverju sinni. Mér persónulega hefur hann verið ákaflega dýrmæt stoð og stytta í blíðu og stríðu. Ég kveð hann með miklu þakklæti og góðum óskum um bjarta daga framundan,“ segir Friðbjörn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.25 472,54 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.25 588,05 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.25 387,79 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.25 378,27 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.25 155,05 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.25 248,86 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.25 238,44 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Hlýri 517 kg
Þorskur 506 kg
Langa 330 kg
Keila 284 kg
Steinbítur 73 kg
Ufsi 57 kg
Karfi 50 kg
Samtals 1.817 kg
16.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 4.940 kg
Skarkoli 2.747 kg
Ýsa 654 kg
Þorskur 161 kg
Samtals 8.502 kg
16.5.25 Garri BA 90 Handfæri
Ufsi 26 kg
Samtals 26 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.25 472,54 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.25 588,05 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.25 387,79 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.25 378,27 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.25 155,05 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.25 248,86 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.25 238,44 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Hlýri 517 kg
Þorskur 506 kg
Langa 330 kg
Keila 284 kg
Steinbítur 73 kg
Ufsi 57 kg
Karfi 50 kg
Samtals 1.817 kg
16.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 4.940 kg
Skarkoli 2.747 kg
Ýsa 654 kg
Þorskur 161 kg
Samtals 8.502 kg
16.5.25 Garri BA 90 Handfæri
Ufsi 26 kg
Samtals 26 kg

Skoða allar landanir »