Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, segir hækkun veiðigjalda ekki vera skattahækkun enda séu veiðigjöldin ekki skattur heldur auðlindarenta.
„Það liggur fyrir að það er hagfræðilega þekkt forsenda að þegar kemur að auðlindarentu þá hefur dreifing hennar ekki áhrif á hvernig fyrirtækin ákveða að skipta sínum framleiðsluþáttum vegna þess að þetta er hrein renta.
Þetta hefur ekkert að gera með ákvörðunartöku þessara fyrirtækja. Þetta er peningur sem fyrst og fremst hefur runnið í vasa eigenda, runnið inn í fyrirtækjarekstur á suðvesturhorninu og því má alveg breyta mín vegna,“ sagði Kristrún á Alþingi í dag.
Hildur Sverrisdóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, segir ríkisstjórnina hyggjast hækka skatta á sjávarútveginn, eina af undirstöðuatvinnugreinum Íslands, svo um um munar án mikillar yfirlegu strax eftir kosningar með einu pennastriki.
Segir hún vinnubrögðin vond, greiningar og samráð við sveitarfélög, lífeyrissjóði og fyrirtæki í og tengd sjávarútvegi í mýflugumynd.
Vísar Hildur í orð Kristrúnar fyrir um ári síðan um að engar kúvendingar yrðu á veiðigjöldum heldur að skipti yrðu sköpuð til að losna við hræðslu um um stórkostlegar kerfisbreytingar eftir hverjar kosningar og að á tíu ára tímabili kæmust veiðigjöld nær 20 milljörðum króna.
Spyr þingmaðurinn forsætisráðherrann hvað hafi breyst.
Kristrún svarar því til að þingheimur þurfi að hluta til að leyfa sér að vera ósammála um suma hluti.
„Ég held að það hljóti að vera þannig að það eru að teiknast upp ólík viðhorf í þessum sal gagnvart ákveðinni sanngirni og gagnvart því að við fylgjum því sem sannarlega stendur í lögum um stjórn fiskveiða, að þetta sé sannarlega eign í eigu þjóðar.“
Segir hún það hafa komið til umræðu í stjórnarmyndunarviðræðum og út úr vel útfærðum og umfangsmiklum greiningum að hægt hafi verið að leita leiða til að ná betur utan um það sem veiðigjaldið eigi sannarlega að mæla, sem sé undirliggjandi aflaverðmæti.
„Þetta er ekki breyting á prósentum og fyrir mér, frú forseti, er það ekki kúvending. Það er ekki kúvending að mæla hlutina með réttari hætti en áður.
Það er ekki kúvending að leiðrétta það sem löngum virðist reyndar hafa verið vitað, m.a. af þeim sem stunda sjómennsku sjálfir, hafa landað í erlendum höfnum og vita hvað er greitt fyrir fiskinn annars staðar, að hér er ekki verið að greiða rétt verð.“
Segir hún ekki um tvöföldun veiðigjalda að ræða eins og haldið hafi verið fram. Frítekjumörk verði hækkuð þannig að minnstu og millistóru útgerðirnar séu að eða munu borga minna en áður var búist við.
„Því sýnir allt í vinnubrögðum þessa máls að vel er að því staðið. En þarna getum við líka einfaldlega verið sammála um að það er pólitík í þessum sal og mér finnst allt í lagi að það sé skýrt.“