„Hann er kannski á leiðinni til okkar í hvalstöðina,“ segir Kristján Loftsson, framkvæmdastjóri Hvals hf., í gamansömum tón í samtali við Morgunblaðið og bætir því við að sé svo þurfi kannski ekki að fara út á báti til að ná í þá í framtíðinni.
Á forsíðu Morgunblaðsins í gær birtist mynd af hnúfubak sem svamlaði í Hvalfirði, en í fréttinni var haft eftir framkvæmdastjóra hvalaskoðunarfyrirtækisins Eldingar að aldrei hefði hvalur sést í Hvalfirði í þann aldarfjórðung sem fyrirtækið hefur boðið upp á hvalaskoðunarferðir.
Kristján hefur áratuga reynslu af hvalveiðum og var hann spurður hvort hann hefði orðið hvala var í Hvalfirði í sinni tíð. Hann segir svo ekki vera, hann hafi áður fyrr séð stöku smáhveli í Hvalfirði, en aldrei stærri hvali eins og hnúfubak, sem nú eru sagðir nokkrir í firðinum. Stórhveli eins og langreyður segir Kristján að haldi sig venjulega fjarri landi, en ekki inni á fjörðum.
Hvalfjörður sé þó djúpur og ákjósanlegur fyrir hvali til athafna. Hnúfubakarnir séu vísast í æti í firðinum, í seiðum eða smáfiski.
Mikil fjölgun hefur orðið í stofni hnúfubaks undanfarin ár og fram hefur komið að þessi hvalategund er farin að hafa vetursetu við landið sem er breyting frá því sem áður var. Hann sé inni á flóum og fjörðum allt árið.
Bæði talsmenn sjómanna og útvegsmanna hafa bent á stóraukið afrán hnúfubaks úr fiskistofnum við landið, ekki síst loðnu, en fæða hnúfubaks er talin vera fiskur að helmingi. Bent hefur verið á ónógar rannsóknir á fæðuvali hnúfubaks og áhrifum af afráni hans og annarra hvalastofna á stærð nytjastofna við Ísland.
Rétt er að halda því til haga að hnúfubakur hefur verið friðaður hér við land undanfarna áratugi.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 11.5.25 | 451,63 kr/kg |
Þorskur, slægður | 11.5.25 | 652,80 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 11.5.25 | 409,40 kr/kg |
Ýsa, slægð | 11.5.25 | 271,97 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 11.5.25 | 236,91 kr/kg |
Ufsi, slægður | 11.5.25 | 251,93 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 11.5.25 | 246,90 kr/kg |
Litli karfi | 9.5.25 | 10,00 kr/kg |
10.5.25 Bibbi Jóns ÍS 65 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.302 kg |
Samtals | 1.302 kg |
10.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.071 kg |
Steinbítur | 4.304 kg |
Ýsa | 2.158 kg |
Skarkoli | 228 kg |
Hlýri | 51 kg |
Langlúra | 40 kg |
Ufsi | 18 kg |
Samtals | 13.870 kg |
10.5.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Þorskur | 771 kg |
Ýsa | 56 kg |
Steinbítur | 25 kg |
Keila | 15 kg |
Langa | 15 kg |
Samtals | 882 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 11.5.25 | 451,63 kr/kg |
Þorskur, slægður | 11.5.25 | 652,80 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 11.5.25 | 409,40 kr/kg |
Ýsa, slægð | 11.5.25 | 271,97 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 11.5.25 | 236,91 kr/kg |
Ufsi, slægður | 11.5.25 | 251,93 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 23.4.25 | 20,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 17.3.25 | 188,00 kr/kg |
Gullkarfi | 11.5.25 | 246,90 kr/kg |
Litli karfi | 9.5.25 | 10,00 kr/kg |
10.5.25 Bibbi Jóns ÍS 65 Grásleppunet | |
---|---|
Grásleppa | 1.302 kg |
Samtals | 1.302 kg |
10.5.25 Einar Guðnason ÍS 303 Lína | |
---|---|
Þorskur | 7.071 kg |
Steinbítur | 4.304 kg |
Ýsa | 2.158 kg |
Skarkoli | 228 kg |
Hlýri | 51 kg |
Langlúra | 40 kg |
Ufsi | 18 kg |
Samtals | 13.870 kg |
10.5.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
---|---|
Þorskur | 771 kg |
Ýsa | 56 kg |
Steinbítur | 25 kg |
Keila | 15 kg |
Langa | 15 kg |
Samtals | 882 kg |