„Lífið er ekki bara vinna“

Þórunn Ingólfsdóttir pakkar frosnum fiski á sínum síðasta starfsdegi.
Þórunn Ingólfsdóttir pakkar frosnum fiski á sínum síðasta starfsdegi. Ljósmynd/Samherji

Þórunn Ingólfsdóttir lét af störfum í fiskvinnsluhúsi ÚA eftir langan og farsælan feril. Þórunn segist kveðja sátt en nú taki við nýr kafli í lífinu. Tilkynnt var um starfslok Þórunnar í færslu á vef Samherja.

Leið Þórunnar lá úr Skorradal í Borgarfirði og norður í land 1974 þegar hún sótti um starf í súkkulaðiverksmiðjunni Lindu á Akureyri. Um áratug síðar varð hún fastráðin hjá K. Jónssyni og hefur allar götur sína starfað hjá ýmsum fyrirtækjum á Fiskitanganum á Akureyri. Til að mynda vann hún um tíma í rækjuverksmiðjunni Strýtu og Útgerðarfélagi Akureyringa en hún lýkur starfsævinni hjá Samherja, nú 71 árs gömul.

„Satt best að segja datt mér ekki í hug að Fiskitanginn á Akureyri yrði minn starfsvettvangur svona lengi. Hérna hefur mér liðið vel, enda næg og stöðug vinna. Ég hef alla tíð unnið mikið og finnst yfirleitt gaman í vinnunni, sérstaklega þegar upp koma tarnir. Slíkt var algengara á árum áður, núna getur fólk yfirleitt gengið út frá stöðugum vinnutíma.“

Þórunn var kvödd með virktum á síðasta degi.
Þórunn var kvödd með virktum á síðasta degi. Ljósmynd/Samherji

Þórunn segist hafa tekið þá ákvörðun um áramótin að nú væri kominn tími til að láta af störfum. Henni hafi þótt skynsamlegra að hætta með hækkandi sól þegar vorið heldur innreið sína en að bíða eftir haustskammdeginu.

„Lífið er ekki bara vinna, ég er orðin 71 árs og heppin að heilsan er góð. Ég er mikið fyrir hreyfingu og útivist og er með ýmis plön í kollinum, Austurríki hefur til dæmis alltaf heillað mig, enda stórfenglegt að stunda fjallgöngur í Ölpunum í góðra vina hópi. Núna er þessum kafla í lífi mínu sem sagt lokið og við tekur sá næsti. Ég kveð ÚA og Samherja sátt og held glöð út í lífið,“ segir Þórunn Ingólfsdóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.5.25 506,20 kr/kg
Þorskur, slægður 19.5.25 585,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.5.25 406,58 kr/kg
Ýsa, slægð 19.5.25 355,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.5.25 201,02 kr/kg
Ufsi, slægður 19.5.25 257,35 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 19.5.25 230,96 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.5.25 Kvistur HF 550 Handfæri
Þorskur 569 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 604 kg
19.5.25 Helgi SH 210 Handfæri
Þorskur 760 kg
Samtals 760 kg
19.5.25 Finnur HF 12 Handfæri
Þorskur 310 kg
Ufsi 145 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 459 kg
19.5.25 Vala HF 5 Handfæri
Þorskur 317 kg
Ufsi 108 kg
Samtals 425 kg
19.5.25 Deilir GK 109 Handfæri
Þorskur 859 kg
Ufsi 9 kg
Karfi 4 kg
Samtals 872 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.5.25 506,20 kr/kg
Þorskur, slægður 19.5.25 585,29 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.5.25 406,58 kr/kg
Ýsa, slægð 19.5.25 355,92 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.5.25 201,02 kr/kg
Ufsi, slægður 19.5.25 257,35 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 19.5.25 230,96 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.5.25 Kvistur HF 550 Handfæri
Þorskur 569 kg
Ufsi 35 kg
Samtals 604 kg
19.5.25 Helgi SH 210 Handfæri
Þorskur 760 kg
Samtals 760 kg
19.5.25 Finnur HF 12 Handfæri
Þorskur 310 kg
Ufsi 145 kg
Ýsa 4 kg
Samtals 459 kg
19.5.25 Vala HF 5 Handfæri
Þorskur 317 kg
Ufsi 108 kg
Samtals 425 kg
19.5.25 Deilir GK 109 Handfæri
Þorskur 859 kg
Ufsi 9 kg
Karfi 4 kg
Samtals 872 kg

Skoða allar landanir »