Þungar áhyggjur af hækkun veiðigjalda

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sést mæla fyrir frumvarpi um breytingar …
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sést mæla fyrir frumvarpi um breytingar á veiðigjaldi. Morgunblaðið/Eggert

Stjórn Vestfjarðastofu lýsir yfir þungum áhyggjum af frumvarpi ríkisstjórnarinnar um hækkun á veiðigjaldi og væntanlegum áhrifum þess á atvinnulíf og samfélög á Vestfjörðum. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send var á mbl.is.

Stjórnin segir jafnframt að miðað við þær forsendur sem liggja að baki breytingu á veiðigjaldi megi telja ljóst að áhrifin verði mjög íþyngjandi og koma afar hart niður á litlum og meðalstórum bolfiskútgerðum. Á Vestfjörðum eru eingöngu litlar og meðalstórar útgerðir í bolfiskveiðum og vinnslu.

Stjórnin vísar í greiningu Deloitte og vestfirskra sjávarútvegsfyrirtækja á ársreikningum þeirra og segja áformin óásættanleg með tilliti til mikillar skerðingar á samkeppnishæfni og framlegð þessara sjávarútvegsfyrirtækja. Slíkur skortur á samkeppnishæfni kemur niður á endurnýjun á tækjabúnaði og fjárfestingu í framþróun, nýsköpun og þjónustukaupum. 

Skora á stjórnvöld að bregðast við

Þá lýsir stjórnin því yfir að þrátt fyrir að frítekjumark hafi verið hækkað falli sú hækkun í raun niður vegna aukins þunga í gjaldtöku á þorsk og ýsu í nýjustu breytingum frumvarpsins. Stjórnin krefst þess að misræmi milli útreikninga ráðuneytis og SFS verði gert skýrt til þess að hægt sé að treysta útreikningum vegna áhrifa af frumvarpinu.

Að lokum skorar stjórn Vestfjarðarstofu á stjórnvöld að bregðast hratt við og endurskoða enn frekar tillögu sína um hækkun á veiðigjaldi þannig að tekið verði tillit til réttmætra áhyggja atvinnulífs og sveitarfélaga á Vestfjörðum. „Það er lágmarkskrafa að áhrifin af hærra veiðigjaldi á samfélög á Vestfjörðum verði könnuð með ítarlegri hætti áður en lengra er haldið,“ segir í yfirlýsingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.25 472,54 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.25 588,05 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.25 387,79 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.25 378,27 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.25 155,05 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.25 248,86 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.25 238,44 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Hlýri 517 kg
Þorskur 506 kg
Langa 330 kg
Keila 284 kg
Steinbítur 73 kg
Ufsi 57 kg
Karfi 50 kg
Samtals 1.817 kg
16.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 4.940 kg
Skarkoli 2.747 kg
Ýsa 654 kg
Þorskur 161 kg
Samtals 8.502 kg
16.5.25 Garri BA 90 Handfæri
Ufsi 26 kg
Samtals 26 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.25 472,54 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.25 588,05 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.25 387,79 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.25 378,27 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.25 155,05 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.25 248,86 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.25 238,44 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Hlýri 517 kg
Þorskur 506 kg
Langa 330 kg
Keila 284 kg
Steinbítur 73 kg
Ufsi 57 kg
Karfi 50 kg
Samtals 1.817 kg
16.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 4.940 kg
Skarkoli 2.747 kg
Ýsa 654 kg
Þorskur 161 kg
Samtals 8.502 kg
16.5.25 Garri BA 90 Handfæri
Ufsi 26 kg
Samtals 26 kg

Skoða allar landanir »