Vilja takmarka erlent eignarhald í eldi

Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir mikilvægt að eignarhald erlendra …
Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, segir mikilvægt að eignarhald erlendra aðila í íslensku eldi verði takmarkað við 25% hlut. mbl.is/Eyþór

Framsóknarflokkurinn hefur lagt til að erlent eignarhald í félögum sem stunda fiskeldi á Íslandi verði takmarkað við 25%. Er markmiðið sagt vera að tryggja að íslenskt samfélag njóti ávinningsins sem skapast af rekstrinum.

Þetta segir Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins í aðsendri grein í Morgunblaðinu í dag þar sem hann vekur athygli á þingsályktunartillögu sem liggur fyrir Alþingi.

„Laxeldi í sjó hefur á undanförnum árum vaxið hraðar en flestar aðrar atvinnugreinar á Íslandi. Þessi ört stækkandi atvinnugrein nýtir stórbrotnar auðlindir okkar; hafsvæðið, hreina orku, vatnið og landið sjálft. Í ljósi þess að áðurnefndar auðlindir eru takmarkaðar er mikilvægt að horfa til framtíðar með langtímahagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi þegar kemur að eignarhaldi og stjórn þessa geira,“ skrifar Sigurður Ingi.

Laxeldi hefur vaxið ört hér á landi undanfarin ár.
Laxeldi hefur vaxið ört hér á landi undanfarin ár. mbl.is/Þorgeir

Bendir hann á að stór hluti sjókvíeldisfyrirtækja á Íslandi sé í eigu erlendra aðila. „Erlend fjárfesting er mikilvæg íslensku samfélagi, en það má ekki gleymast að yfirráð yfir auðlindum og lykilinnviðum eiga að vera í höndum þjóðarinnar sjálfrar.“

Þá sé markmiðið að tryggja innlend yfirráð yfir lykilauðlindum. „Með því styrkjum við sjálfsforræði Íslendinga yfir atvinnustarfsemi sem byggir á þjóðarauði, rétt eins og gert hefur verið í sjávarútvegi um árabil. Við tryggjum að ábatinn verði nýttur innanlands til að efla byggðir, stuðla að nýsköpun, standa undir vaxandi kröfum um sjálfbærni og verja náttúru landsins.“

Vekur Sigurður Ingi athygli á því að löggjöf sem myndi takmarka erlent eignarhald eldisfyrirtækja sé ekki einsdæmi og bendir hann á sambærilegt fyrirkomulag í Færeyjum.

Mismunandi dreifing eignarhalds

Þrjú stærstu félögin sem stunda sjókvíaeldi við Íslandsstrendur eru Kaldvík á Austfjörðum og Arnarlax og Arctic Fish á Vestfjörðum. Félögin þrjú eru öll skráð í kauphöll í gegnum norsk eignarhaldsfélög.

Stærsti hluthafi Kaldvíkur er Austur Holding AS sem fer með 55,29% hlut, en það félag er í sameiginlegri eigu norska félagsins Måsøval Eiendom sem á 70,7% hlutafjár og Ísfélagsins sem á 29,3% þess, þannig á Ífélagið 16% hlut í Kaldvík. Þá eru meðal stærstu hluthafa í Kaldvík útgerðarfélögin Skinney-Þinganes sem fer með 11,87% og Eskja sem fer með 2,88%.

Að minnsta kosti 46% hlutafé Kaldvíkur er á höndum íslenskra fjárfesta.

Í tilfelli Arnarlax er meirihluti hlutabréfa í eigu norska laxeldisfyrirtækisins SalMar sem fer með 52,48%. Þá er verulegur hluti félagsins í eigu erlendra banka og sjóða en einhverjir íslenskir aðilar fara með hluti í gegnum slíka aðila, t.a.m. í gegnum J.P. Morgan Bank Luxembourg S.A. sem fer með 9,58%. Auk þess fer Íslandsbanki með 7,54% hlut í félaginu.

Norski laxeldisrisinn Mowi er eigandi 51,28% hlutar í Arctic Fish en Síldarvinnslan er næst stærsti hluthafinn með 34,19%. Síldarvinnslan er einnig með hluti í gegnum J.P. Morgan SE sem er skráður fyrir 6,27%. Restin af hlutafé félagsins er í eigu fjárfestingasjóða og banka en Landsbankinn og Íslandsbanki fara samanlagt með um 2,5% hlut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.25 472,54 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.25 588,05 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.25 387,79 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.25 378,27 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.25 155,05 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.25 248,86 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.25 238,44 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Hlýri 517 kg
Þorskur 506 kg
Langa 330 kg
Keila 284 kg
Steinbítur 73 kg
Ufsi 57 kg
Karfi 50 kg
Samtals 1.817 kg
16.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 4.940 kg
Skarkoli 2.747 kg
Ýsa 654 kg
Þorskur 161 kg
Samtals 8.502 kg
16.5.25 Garri BA 90 Handfæri
Ufsi 26 kg
Samtals 26 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 16.5.25 472,54 kr/kg
Þorskur, slægður 16.5.25 588,05 kr/kg
Ýsa, óslægð 16.5.25 387,79 kr/kg
Ýsa, slægð 16.5.25 378,27 kr/kg
Ufsi, óslægður 16.5.25 155,05 kr/kg
Ufsi, slægður 16.5.25 248,86 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 23.4.25 20,00 kr/kg
Djúpkarfi 17.3.25 188,00 kr/kg
Gullkarfi 16.5.25 238,44 kr/kg
Litli karfi 13.5.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

16.5.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína
Hlýri 517 kg
Þorskur 506 kg
Langa 330 kg
Keila 284 kg
Steinbítur 73 kg
Ufsi 57 kg
Karfi 50 kg
Samtals 1.817 kg
16.5.25 Silfurborg SU 22 Dragnót
Steinbítur 4.940 kg
Skarkoli 2.747 kg
Ýsa 654 kg
Þorskur 161 kg
Samtals 8.502 kg
16.5.25 Garri BA 90 Handfæri
Ufsi 26 kg
Samtals 26 kg

Skoða allar landanir »