Margir strandveiðimenn sjá fram á að vera fastir í höfn út vikuna vegna brælu. Þetta segir Alfons Finnsson fréttaritari Morgunblaðsins en hann gerir sjálfur út bát frá Ólafsvík. „Já, vikan lítur ekki vel út,“ segir Alfons. Að hans sögn reri einn bátur suður fyrir Öndverðarnes þar sem nú sé vindasamt en ekki mikill sjór. Sá bátur sé þó á leið í höfn þegar þetta er skrifað og að öðru leyti sé engin hreyfing.
Síðasta mánuðinn segir Alfons að hann hafi aðeins komist í sjö róðra en í maí í fyrra hafi þeir verið tólf talsins. Hann tekur fram að töluverður munur sé á veðurlagi á milli ára. Nú í maí hafi komið brælukafli norðan við Öndverðanes en þá hafi verið hægt að róa Arnarstapa.
Þegar Alfons lítur yfir það sem af er þessu tímabili reiknast honum til að hann hafi aðeins náð einum góðum degi á strandveiðum. Reglulega hafi komið upp suðaustan bræla en síðan hafi bilanir á hans eigin bát sett strik í reikninginn og hann hafi því róið minna en hann hefði viljað. Vikan fram undan virðist þó stefna í algjört stopp. „Miðað við spánna er hún bara undirlögð af brælum. Það er enginn að fara út.” Þetta á við um Breiðafjörðinn, þar sem Alfons rær, og víðar en gular og appelsínugular veðurviðvaranir hafa verið gefnar út fyrir land allt.
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.6.25 | 505,33 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.6.25 | 541,29 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.6.25 | 475,80 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.6.25 | 478,86 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.6.25 | 209,36 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.6.25 | 278,44 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.5.25 | 99,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 16.6.25 | 30,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.6.25 | 239,35 kr/kg |
Litli karfi | 18.6.25 | 10,00 kr/kg |
19.6.25 Mjallhvít KE 6 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 464 kg |
Samtals | 464 kg |
19.6.25 Erla AK 52 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 565 kg |
Karfi | 64 kg |
Ufsi | 63 kg |
Keila | 8 kg |
Samtals | 700 kg |
19.6.25 Teista AK 16 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 452 kg |
Ufsi | 18 kg |
Karfi | 9 kg |
Ýsa | 4 kg |
Samtals | 483 kg |
19.6.25 Skarphéðinn SU 3 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 720 kg |
Samtals | 720 kg |
Afurð | Dags. | Meðalverð |
---|---|---|
Þorskur, óslægður | 19.6.25 | 505,33 kr/kg |
Þorskur, slægður | 19.6.25 | 541,29 kr/kg |
Ýsa, óslægð | 19.6.25 | 475,80 kr/kg |
Ýsa, slægð | 19.6.25 | 478,86 kr/kg |
Ufsi, óslægður | 19.6.25 | 209,36 kr/kg |
Ufsi, slægður | 19.6.25 | 278,44 kr/kg |
Undirmálsufsi, óslægður | 26.5.25 | 99,00 kr/kg |
Djúpkarfi | 16.6.25 | 30,00 kr/kg |
Gullkarfi | 19.6.25 | 239,35 kr/kg |
Litli karfi | 18.6.25 | 10,00 kr/kg |
19.6.25 Mjallhvít KE 6 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 464 kg |
Samtals | 464 kg |
19.6.25 Erla AK 52 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 565 kg |
Karfi | 64 kg |
Ufsi | 63 kg |
Keila | 8 kg |
Samtals | 700 kg |
19.6.25 Teista AK 16 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 452 kg |
Ufsi | 18 kg |
Karfi | 9 kg |
Ýsa | 4 kg |
Samtals | 483 kg |
19.6.25 Skarphéðinn SU 3 Handfæri | |
---|---|
Þorskur | 720 kg |
Samtals | 720 kg |