Kaldvík klárar 40 milljarða króna endurfjármögnun

Uppskera Kaldvíkur á tímabilinu nam 6.383 tonnum.
Uppskera Kaldvíkur á tímabilinu nam 6.383 tonnum. Ljósmynd/Kaldvík

Laxeldisfélagið Kaldvík AS hefur lokið við umfangsmikla endurfjármögnun sem felur í sér nýja lánsfjármögnun og hlutafjáraukningu. Markmið endurfjármögnunarinnar er að styrkja fjárhagsstöðu félagsins og styðja við áframhaldandi vöxt og fjárfestingar. Þetta segir tilkynning frá Kaldvík. 

„Við náðum samkomulagi við lánveitendur okkar í lok maí sem tryggði félaginu ríflega 33 milljarða króna lánsfjármögnun til 4 ára. Lánsfjármögnunin er í formi sambankaláns sem fjórir bankar koma að DNBNordeaArion Banki og Landsbankinn,“ segir Róbert Róbertsson, fjármálastjóri Kaldvíkur, í tilkynningunni. 

Kaldvík vann að aukningu hlutafjár félagsins samhliða endurfjármögnunin sem tryggði félaginu 6,6 milljarða króna. Hlutafjáraukningin naut öflugs stuðnings frá meirihlutaeiganda félagsins, Austur Holding AS, og styrkir eiginfjárstöðu félagsins verulega. 

Áætlar að framleiðsla ársins nemi um 21.500 tonn 

Í tilkynningunni segir að rekstrarniðurstaða fyrsta ársfjórðungs hafi verið umfram væntingar félagsins. Rekstrartekjur námu 48,4 milljónum evra, sem er 56% aukning frá sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður (EBIT) þrefaldaðist í ársfjórðungnum samanborið við fyrsta ársfjórðung síðasta árs og nam 9,8 milljónir evra, samanborið við 2,4 milljónir evra árið áður. Rekstrarhagnaður á hvert kíló (EBIT/KG) nam 1,54 evrum og meðalverð var 7,44 evrur á kíló.  

Uppskera á tímabilinu nam 6.383 tonnum, sem er ríflega 60% aukning frá 3.986 tonnum á fyrsta ársfjórðungi 2024. Félagið áætlar að framleiðsla 2025 nemi um 21.500 tonn og stefnir að því að sleppa 7,5 milljónum seiða á árinu 2025 til að stuðla að áframhaldandi vexti. 

Markmið félagsins innan seilingar 

Í lok fyrsta ársfjórðungs lauk Kaldvík við kaup á kassaverksmiðju og eignaðist að fullu sláturstöðina Búlandstind. Félagið bíður nú eftir afgreiðslu rekstrarleyfis fyrir nýtt eldissvæði í Seyðisfirði. Kaldvík hefur nú leyfi til framleiðslu á samtals 43.800 tonnum. 

Róbert segir nýlegar fjárfestingar hafa styrkt virðiskeðju félagsins. Kaup félagsins á nýrri kassaverksmiðju á Djúpavogi, ásamt auknum hlut í vinnslu- og sláturhúsum, séu talin skila fyrirtækinu árlegum sparnaði upp á 3 milljónir evra (um 0,14 evrur á hvert kíló). Með þessu aukist sveigjanleiki og hagræðing í allri virðiskeðjunni.  

„Við höfum lagt í miklar fjárfestingar í innviðum félagsins síðustu ár með það að markmiði að tryggja stöðuga 30.000 tonna framleiðslu árlega. Í dag standa innviðir félagsins undir 30.000 tonna framleiðslu árlega. Það er því mikilvægt fyrir okkur að nýta þessa framleiðslugetu til að ná fram stærðarhagkvæmni og meiri samkeppnishæfni í framleiðslukostnaði,“ segir Róbert í tilkynningunni. Þetta yfirlýsta markmið félagsins sé innan seilingar á næstu árum

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.6.25 505,65 kr/kg
Þorskur, slægður 19.6.25 541,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.6.25 476,37 kr/kg
Ýsa, slægð 19.6.25 478,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.6.25 205,52 kr/kg
Ufsi, slægður 19.6.25 277,48 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 19.6.25 239,92 kr/kg
Litli karfi 18.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.6.25 Jökull SF 75 Handfæri
Þorskur 415 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 548 kg
19.6.25 Dögg SF 18 Handfæri
Þorskur 781 kg
Ufsi 396 kg
Samtals 1.177 kg
19.6.25 Greifinn SU 58 Handfæri
Þorskur 830 kg
Samtals 830 kg
19.6.25 Stelkur RE 7 Handfæri
Þorskur 803 kg
Ufsi 148 kg
Samtals 951 kg
19.6.25 Birna SF 147 Handfæri
Ufsi 976 kg
Þorskur 771 kg
Samtals 1.747 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 19.6.25 505,65 kr/kg
Þorskur, slægður 19.6.25 541,20 kr/kg
Ýsa, óslægð 19.6.25 476,37 kr/kg
Ýsa, slægð 19.6.25 478,86 kr/kg
Ufsi, óslægður 19.6.25 205,52 kr/kg
Ufsi, slægður 19.6.25 277,48 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 26.5.25 99,00 kr/kg
Djúpkarfi 16.6.25 30,00 kr/kg
Gullkarfi 19.6.25 239,92 kr/kg
Litli karfi 18.6.25 10,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

19.6.25 Jökull SF 75 Handfæri
Þorskur 415 kg
Ufsi 133 kg
Samtals 548 kg
19.6.25 Dögg SF 18 Handfæri
Þorskur 781 kg
Ufsi 396 kg
Samtals 1.177 kg
19.6.25 Greifinn SU 58 Handfæri
Þorskur 830 kg
Samtals 830 kg
19.6.25 Stelkur RE 7 Handfæri
Þorskur 803 kg
Ufsi 148 kg
Samtals 951 kg
19.6.25 Birna SF 147 Handfæri
Ufsi 976 kg
Þorskur 771 kg
Samtals 1.747 kg

Skoða allar landanir »