Beitir NK kom til Neskaupstaðar um hádegisbil í gær með 700 tonn af síld. Vinnsla hófst þegar í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar.
„Þetta gekk mun verr en að undanförnu,“ segir Tómas Kárason skipstjóri í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Við vorum í Héraðsflóanum og tókum fjögur hol. Aflinn fékkst að mestu í tveimur þeirra. Það voru 350 tonn í öðru og 240 í hinu. Það var hins vegar lítið í hinum tveimur holunum, 70 tonn í öðru og einungis 40 í hinu.“
Að sögn Tómasar fengu skip þó góðan afla undir lok túrsins norður í Bakkaflóadýpi, sem bendir til þess að síldin hafi fært sig þangað. „Síldin stríðir okkur stundum og það er ekki annað að gera en að sætta sig við það,“ segir hann.
Tómas segir að síldin sé af fínni gerð og dálítið af íslenskri síld í bland við þá norsk-íslensku. Hann áætlar að tveir túrar séu eftir hjá Beiti á þessari síldarvertíð og að í kjölfarið verði hugað að veiðum á íslenskri sumargotssíld fyrir vestan land.
„Það er rosalega mikið af hval á síldarmiðunum núna og þetta er hvalur af öllum stærðum og gerðum,“ bætir hann við að lokum. „Þegar við drögum pokann að skipinu fylgir alltaf fullt af háhyrningum sem éta hvern fisk sem dettur úr belgnum. Það gengur mikið á þegar þetta gerist.“
| Afurð | Dags. | Meðalverð |
|---|---|---|
| Þorskur, óslægður | 14.11.25 | 621,03 kr/kg |
| Þorskur, slægður | 14.11.25 | 757,26 kr/kg |
| Ýsa, óslægð | 14.11.25 | 397,07 kr/kg |
| Ýsa, slægð | 14.11.25 | 405,44 kr/kg |
| Ufsi, óslægður | 14.11.25 | 278,15 kr/kg |
| Ufsi, slægður | 14.11.25 | 304,96 kr/kg |
| Undirmálsufsi, óslægður | 24.10.25 | 9,00 kr/kg |
| Djúpkarfi | 23.10.25 | 243,00 kr/kg |
| Gullkarfi | 14.11.25 | 358,55 kr/kg |
| Litli karfi | 16.10.25 | 11,00 kr/kg |
| 15.11.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
|---|---|
| Ýsa | 5.153 kg |
| Þorskur | 2.409 kg |
| Steinbítur | 576 kg |
| Keila | 24 kg |
| Samtals | 8.162 kg |
| 15.11.25 Jónína Brynja ÍS 55 Lína | |
|---|---|
| Ýsa | 612 kg |
| Þorskur | 235 kg |
| Langa | 226 kg |
| Karfi | 68 kg |
| Keila | 30 kg |
| Steinbítur | 18 kg |
| Samtals | 1.189 kg |
| 15.11.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
|---|---|
| Þorskur | 488 kg |
| Ýsa | 80 kg |
| Langa | 71 kg |
| Steinbítur | 60 kg |
| Skarkoli | 16 kg |
| Karfi | 7 kg |
| Samtals | 722 kg |
| Afurð | Dags. | Meðalverð |
|---|---|---|
| Þorskur, óslægður | 14.11.25 | 621,03 kr/kg |
| Þorskur, slægður | 14.11.25 | 757,26 kr/kg |
| Ýsa, óslægð | 14.11.25 | 397,07 kr/kg |
| Ýsa, slægð | 14.11.25 | 405,44 kr/kg |
| Ufsi, óslægður | 14.11.25 | 278,15 kr/kg |
| Ufsi, slægður | 14.11.25 | 304,96 kr/kg |
| Undirmálsufsi, óslægður | 24.10.25 | 9,00 kr/kg |
| Djúpkarfi | 23.10.25 | 243,00 kr/kg |
| Gullkarfi | 14.11.25 | 358,55 kr/kg |
| Litli karfi | 16.10.25 | 11,00 kr/kg |
| 15.11.25 Hafrafell SU 65 Lína | |
|---|---|
| Ýsa | 5.153 kg |
| Þorskur | 2.409 kg |
| Steinbítur | 576 kg |
| Keila | 24 kg |
| Samtals | 8.162 kg |
| 15.11.25 Jónína Brynja ÍS 55 Lína | |
|---|---|
| Ýsa | 612 kg |
| Þorskur | 235 kg |
| Langa | 226 kg |
| Karfi | 68 kg |
| Keila | 30 kg |
| Steinbítur | 18 kg |
| Samtals | 1.189 kg |
| 15.11.25 Fríða Dagmar ÍS 103 Lína | |
|---|---|
| Þorskur | 488 kg |
| Ýsa | 80 kg |
| Langa | 71 kg |
| Steinbítur | 60 kg |
| Skarkoli | 16 kg |
| Karfi | 7 kg |
| Samtals | 722 kg |
