Hjá Samherja á Akureyri starfa hátt í 30 manns sem eiga rætur að rekja til Taílands. Menningu þessara starfsmanna var haldið á loft um helgina með matar- og menningarkvöldi sem starfsmannafélag ÚA stóð fyrir.
Supattra Singsuto, sem hefur starfað hjá Samherja í mörg ár, var í undirbúningsnefnd fyrir kvöldið en hún segir þó að margar hendur hafi komið að verkefninu. Ekki var vanþörf á því að mörgu varð að huga þar sem aðalréttirnir voru tíu talsins auk meðlætis og þá hafi einnig verið nokkrir eftirréttir. Allir réttirnir voru taílenskir.
„Íslendingar kunna greinilega vel að meta taílenskan mat, sem vissulega er yfirleitt meira kryddaður en sá íslenski og grænmeti er líka algengara,“ segir Supattra. „Síðan vorum við með sýnishorn af taílenskri menningu, dansa og fleira, sem er ómissandi þegar fólk kemur saman og skemmtir sér.“
Þorsteinn Már Baldvinsson var heiðraður á taílensku kvöldi Samherja á Akureyri.
Ljósmynd/Samherji
Þorsteinn Már Baldvinsson, sem lét af störfum sem forstjóri Samherja á árinu, var sérstakur heiðursgestur kvöldsins og var honum færður blómvöndur af tilefninu.
Starfsmenn á Dalvík gæddu sér á villibráð
Starfsmenn Samherja á Dalvík létu ekki sitt eftir liggja um helgina en þar stóð starfsmannafélagið Fjörfiskur fyrir villibráðakvöldi. Björk Hólm, þjóðfræðingur og safnstjóri, sá um veislustjórn og þeytti skífum fram eftir kvöldi. Ragnheiður Rut Friðgeirsdóttir formaður Fjörfisks segir fjölmarga koma að undirbúningnum. „Þetta villibráðakvöld tókst frábærlega, maturinn var sérlega góður og allir skemmtu sér konunglega.“
Matreiðslumenn kvöldsins á villibráðakvöldi Samherja á Dalvík, Sveinn Haraldsson og Sævar Freyr Ingason.
Ljósmynd/Samherji