Ýsan erfiðari en áður

Blængur kom til hafnar í fyrrakvöld eftir 24 daga úthald.
Blængur kom til hafnar í fyrrakvöld eftir 24 daga úthald. Ljósmynd/Síldarvinnslan

Frystitogarinn Blængur NK kom til hafnar í Neskaupstað í fyrrakvöld eftir 24 daga úthald. Landaður afli var 461 tonn, eða um 220 tonn af ýsu og 100 tonn af þorski. Aflaverðmætið mun vera um 350 milljónir króna.

Bjarni Ólafur Hjálmarsson var skipstjóri í fyrri hluta túrsins og Sigurður Hörður Kristjánsson tók skipstjórn seinni hlutans að sér.

„Það þarf að hafa fyrir ýsunni“

„Við byrjuðum fyrir vestan en vorum þar einungis fyrstu dagana,“ segir Ólafur í samtali við heimasíðu Síldarvinnslunnar. „Síðan færðum við okkur austur fyrir land og vorum þar. Þetta var kropp allan tímann og lögð áhersla á ýsuveiði. Það þarf að hafa fyrir ýsunni um þessar mundir,“ bætir hann við.

Þegar Sigurður Hörður tók við var haldið áfram að sækja á Austfjarðarmiðin. „Við vorum fyrir austan allan tímann, frá Digranesflaki að Stokksnesgrunni. Áfram var haldið að reyna við ýsu og þetta var svona nudd," segir Sigurður og bætir við að honum þyki ýsan mun erfiðari en áður. Veðrið hafi þó verið ánægjulegt. „Mest af tímanum var einstök veðurblíða eins og Austfirðingar kannast við. Í sannleika sagt var veðrið hreint ótrúlegt,” segir hann að lokum.

Nú er árshátíðarferð Síldarvinnslunar til Póllands á næsta leiti og Blængsmenn, rétt eins og aðrir starfsmenn, farnir að láta sig hlakka til.

mbl.is
Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 7.11.25 561,05 kr/kg
Þorskur, slægður 7.11.25 709,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 7.11.25 369,09 kr/kg
Ýsa, slægð 7.11.25 399,55 kr/kg
Ufsi, óslægður 7.11.25 236,05 kr/kg
Ufsi, slægður 7.11.25 281,90 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 24.10.25 9,00 kr/kg
Djúpkarfi 23.10.25 243,00 kr/kg
Gullkarfi 7.11.25 192,43 kr/kg
Litli karfi 16.10.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

7.11.25 Kristján HF 100 Lína
Þorskur 407 kg
Ýsa 235 kg
Keila 148 kg
Hlýri 60 kg
Karfi 22 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 877 kg
7.11.25 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 177 kg
Þorskur 100 kg
Karfi 59 kg
Langlúra 58 kg
Skarkoli 56 kg
Steinbítur 48 kg
Þykkvalúra 15 kg
Ufsi 13 kg
Samtals 526 kg
7.11.25 Magnús SH 205 Dragnót
Þorskur 2.817 kg
Ýsa 1.455 kg
Skrápflúra 876 kg
Samtals 5.148 kg

Skoða allar landanir »

Fleira áhugavert
Afurð Dags. Meðalverð
Þorskur, óslægður 7.11.25 561,05 kr/kg
Þorskur, slægður 7.11.25 709,46 kr/kg
Ýsa, óslægð 7.11.25 369,09 kr/kg
Ýsa, slægð 7.11.25 399,55 kr/kg
Ufsi, óslægður 7.11.25 236,05 kr/kg
Ufsi, slægður 7.11.25 281,90 kr/kg
Undirmálsufsi, óslægður 24.10.25 9,00 kr/kg
Djúpkarfi 23.10.25 243,00 kr/kg
Gullkarfi 7.11.25 192,43 kr/kg
Litli karfi 16.10.25 11,00 kr/kg

Fleiri tegundir »

7.11.25 Kristján HF 100 Lína
Þorskur 407 kg
Ýsa 235 kg
Keila 148 kg
Hlýri 60 kg
Karfi 22 kg
Ufsi 5 kg
Samtals 877 kg
7.11.25 Ásdís ÍS 2 Dragnót
Ýsa 177 kg
Þorskur 100 kg
Karfi 59 kg
Langlúra 58 kg
Skarkoli 56 kg
Steinbítur 48 kg
Þykkvalúra 15 kg
Ufsi 13 kg
Samtals 526 kg
7.11.25 Magnús SH 205 Dragnót
Þorskur 2.817 kg
Ýsa 1.455 kg
Skrápflúra 876 kg
Samtals 5.148 kg

Skoða allar landanir »