Kodiaq er klár smellur

Frá því bílaframleiðandinn Skoda reis úr öskustónni um síðustu aldamót hefur merkinu farið jafnt og þétt fram. Bílarnir verða sífellt betri og um leið hefur útlitsþróunin verið einkar jákvæð. Nú er svo komið að Skoda Octavia og stóri bróðirinn Superb eru báðir virkilega laglegir bílar, með útlitið í takt við gæðin. Þetta er landinn fullvel meðvitaður um enda seljast bílarnir hörkuvel og Octavian er með vinsælli bílum hér á landi. Það er því ekki lítil eftirvænting sem ríkt hefur meðal bílaáhugamanna, ekki síst hér á landi, síðan út spurðist að loks væri væntanlegur jeppi frá Skoda, sá fyrsti í sögu framleiðandans. Jeppinn heitir Kodiaq og skemmst er frá því að segja að hann er frábærlega vel heppnaður.

Augljós ættarsvipur

Þeir vita sem til þekkja að Skoda-bílarnir hafa sterkan ættarsvip sem hefur tekist að heimfæra með miklum ágætum á mismunandi gerðir bíla innan fjölskyldunnar. Það getur verið snúið að taka svip og útlitseinkenni fólksbíla og færa með góðu móti yfir á jeppa, en Skoda hefur tekist þessi yfirfærsla með miklum ágætum. Framsvipurinn allur, framljós og grill, er náskyldur Octaviu og Superb, og afturljósin eru nánast eins og á hinum síðarnefnda. Hvort tveggja gengur firnavel upp í yfirbyggingu jeppa og Kodiaq ber þess ekki merki að vera frumraun heldur skín í gegn að hér er á ferðinni hönnun sem þegar stendur á nokkurra ára merg. Í útliti stenst Kodiaq ekki bara prófið heldur rúllar því upp með láði.

Drekkhlaðinn búnaði

Það sem kemur einna helst á óvart þegar bíllinn er skoðaður nánar er hversu vel hann er búinn. Tengimöguleikarnir eru slíkir að réttilega mætti tala um „snjallbíl“ því hægt er að para öll helstu upplýsinga- og afþreyingarkerfin við snjallsíma farþega í gegnum Bluetooth eða SmartLink. Öll stýring á þessu fer fram gegnum þægilegan snertiskjá. Í Kodiaq er að finna Columbus-upplýsinga- og afþreyingarkerfi sem býður upp á 64 GB gagnapláss, DVD og LTE-einingu sem valbúnað fyrir háhraða nettengingu. Wi-Fi heitur reitur gerir svo farþegum jeppans kleift að vafra um veraldarvefinn, streyma tónlist að eigin vali eða skoða tölvupóstinn sinn.

Efnisvalið er gott og bíllinn hefur talsvert „dýra“ tilfinningu innandyra. Plássið er gríðarlega gott, eins og lenska er orðin hjá Skoda, að því marki að farangursrými Kodiaq er það mesta í sínum flokki. Hægt er að fá bílinn í 7 sæta útgáfu og merkilegt nokk þá fer bara alveg ágætlega um mann þar aftast. Þó er ekki hægt að mæla með mjög viðmikilli langkeyrslu með tvö fullvaxna og fíleflda karlmenn þar aftur í. En börnin hafa þar feikinóg pláss.

Í raun er búnaðurinn allur svo vel útilátinn að helst væri hans að vænta í jeppa sem tilheyrði talsvert hærri verðflokki. Of langt mál er að telja þar allt upp en sem dæmi um hugvitsamlega nýjung eru nettar hurðarhlífar sem smeygjast á augabragði út þegar hurðirnar eru opnaðar og þekja þar með hinn lóðrétta kant hurðarflekans sem einmitt er hættast við hnjaski þegar bíllinn er opnaður í þröngu stæði. Bæði getur málning kvarnast upp úr hurðarkantinum og eins getur bíll sem opnaður er hæglega skemmst. Það mun ekki gerast með Skoda Kodiaq og téðar hurðarhlífar smeygjast leiftursnöggt til baka þegar hurðunum er lokað. Þessi einfaldi og hugvitssamlegi snilldarbúnaður verður að líkindum orðinn staðalbúnaður víðast hvar áður en á mjög löngu líður enda getur hann sparað tugi og jafnvel hundruð þúsunda króna í óþörfum, hvimleiðum og skelfilega kostnaðarsömum smátjónum. Bravó fyrir það, Skoda. Af öðrum hugvitssamlegum viðbótum má nefna að framhurðirnar hafa að geyma hvor sína regnhlífina í fullri stærð, og svo er snjósköfu að finna í bensínlokinu.

Framúrskarandi í akstri

Skoda er búinn skínandi góðri fjöðrun sem skilar honum jafn vel yfir ójöfnur sem langar, sléttar hraðbrautir. Hann er hinn fínasti í stýri, léttur og viðbragðsgóður fyrir jeppa af þessari stærð og beygjuradíusinn kom á óvart; þessi rúmgóði jeppi reyndist liprari en undirritaður hélt til að byrja með. Vinnslan í vélinni er til fyrirmyndar og þessi stóri, rúmgóði og stöðugi jeppi er skemmtilega röskur af stað þegar um það er beðið. Ökumaður situr hátt og útsýni er gott til allra átta. Þá ber það vel heppnaðri hönnun skýrt vitni að veghljóð var varla greinanlegt, ekki einu sinni á hraðbrautaakstri og vindgnauð varla heldur. Kodiaq er allt í allt framúrskarandi hljóðlátur og þægilegur í akstri. Farangursrými er gríðarlegt – frá 765 lítrum og upp í um 2.000 lítra þegar aftari sætisröð er niðri.

Þegar allt er sett upp á strik má ljóst vera að ef veðmál um vinsældir nýrra bíla viðgengjust á Íslandi fengist ekki ýkja hár stuðull á Skoda Kodiaq; það blasir við að þessi nýi jeppi verður þrælvinsæll, ef ekki leiðandi í sínum flokki. Hér er að öllum líkindum kominn bíll sem mun marka ákveðin þáttaskil hjá framleiðandanum því hann verður klárlega einn af smellum ársins þegar 2017 verður gert upp.

+ Aksturseiginleikar, búnaður, pláss, útlit, hljóðlátur 

- Engir gallar, en þéttara vélarhljóð hefði óneitanlega kitlað

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: