Blanda af öllu því besta

Útlit DB 11 er í senn íhaldssamt og framúrstefnulegt, yfirdrifið …
Útlit DB 11 er í senn íhaldssamt og framúrstefnulegt, yfirdrifið og lágstemmt. Andstæðurnar mætast í ómótstæðilegum pakka. Ljósmynd/Ásgeir Ingvarsson

Ég er örugglega ekki einn um að velta því stundum fyrir mér hvaða eina bíl ég myndi kaupa ef ég ætti marga milljónatugi inni á bankabók. Í huganum fer ég yfir langan lista af öndvegisbílum og strika þá út hvern á fætur öðrum þar til að eftir standa tvö tryllitæki: Annars vegar nýi Bentley Continental GT og hins vegar Lamborghini Huracán Performante.

Ég laðast að þessum tveimur bílum því þeir eru báðir nálægt því að vera í efsta stigi, hvor á sinn hátt og hvor í sínum flokki, en samt án þess að fara allt of langt yfir strikið. Nýi Continentalinn er sportlegur, hraðskreiður, afskaplega mikið í hann lagt og tiltölulega hentugur fyrir bæði hversdagsstúss og langa bíltúra. Huracán er eldsnöggur ítalskur töffari, fær vegfarendur til að snarstoppa á punktinum, en er ekki svo yfirdrifinn að dugi ekki til daglegs brúks. Í fantasíunum sé ég fyrir mér að ég gæti farið á hvorum þessara bíla sem er út í búð að kaupa í matinn eða í ferðalag þvert yfir Evrópu.

En vandinn er sá að Continental GT og Huracán hafa hvor fyrir sig eiginleika sem hinn skortir: Huracáninn er ekki alveg nógu praktískur, með sáralítið skott, sæti sem henta ekki vel fyrir langferðir, og annars fallegt farþegarýmið er ekki alveg nógu glerfínt. Continentallinn er að sama skapi aðeins of yfirvegaður, aðeins of stór, og hefur ekki sama brjálæðislega vélarhljóðið.

Fyrr í sumar skaust ég til Singapúr og fann þar lausn á valkvíðanum: Aston Martin DB 11 V8.

Það sem Aston Martin gerir er að sameina bestu kosti ítalsks sportbíls og bresks eðalvagns. DB 11 er alvöru drossía, sem umvefur ökumann og farþega í lúxus og með sætum sem fara vel með rass og bak; en um leið með vél sem fnæsir og urrar, og með aksturseignleika sem hæfa spani á kappakstursbraut.

Útlit DB 11 er í senn íhaldssamt og framúrstefnulegt, yfirdrifið …
Útlit DB 11 er í senn íhaldssamt og framúrstefnulegt, yfirdrifið og lágstemmt. Andstæðurnar mætast í ómótstæðilegum pakka. Ljósmynd / Ásgeir Ingvarsson

Ef Meryl Streep væri með vél

Ætli það skrifist ekki á reynsluleysi og skort á þroska að sportbílarnir frá Aston Martin rötuðu varla inn í sjónsviðið hjá mér fyrr en nú. Kannski er það vegna þess að útlit Aston Martin-bíla er tiltölulega lágstemmt í samanburði við t.d. Lamborghini, Ferrari og Bentley. Núna fyrst sé ég almennilega hvað hófstilltur glæsileikinn er ómótstæðilegur.

Hlutföllin eru óviðjafnanleg, útlínurnar eins og á byssukúlu, en samt er eins og Aston Martin-bílar hafi ekki sömu sýniþörf og aðrir sportbílar. DB 11 hefur á sér yfirbragð sem minnir á tignarlega leikkonu á besta aldri, einhvern á borð við Meryl Streep eða Julianne Moore: hann reynir ekkert að vekja á sér athygli með glingri og stælum því hann veit hvað hann er að gera, veit fyrir hvað hann stendur, og þarf ekki að sýnast eða metast við aðra.

Og hver myndi ekki miklu frekar vilja fara í bíltúr með Meryl Streep en Cardi B.?

Það var einmitt eitthvað í þessa veru sem fulltrúi Aston Martin sagði mér á meðan við ókum um Singapúr: Þeir ungu og nýríku sem vilja láta á sér bera kaupa Ferrari, Lamborghini eða McLaren en veraldarvanir unnendur hraðskreiðra bíla, sem eru fágaðir og hafa þroskaðan smekk, velja Aston Martin. Og viti menn að af öllum lúxus- og ofursportbílum ku Aston Martin vera sá framleiðandi sem kaupendur halda mestri tryggð við: þeir sem á annað borð uppgötva kosti Aston Martin virðast ekki geta hugsað sér annað.

Í Singapúr renna ólíkir menningarheimar saman í litríkum graut. Þar …
Í Singapúr renna ólíkir menningarheimar saman í litríkum graut. Þar er nóg af efnuðu bíladellufólki og hvergi í Asíu selst Aston Martin betur. Ljósmynd / Thinkstock

Tímamótabíll

Framleiðsla DB 11 hófst árið 2016 og markaði kaflaskil í sögu Aston Martin með nýrri stefnu í bæði hönnun og smíði. Eins og aldargamall bílasmiðurinn hefur orðað það á DB 11 að vísa veginn inn í næstu öld.

DB 11 er arftaki DB9 og ætlað að vera hér um bil í miðju Aston Martin-fjölskyldunnar: örlítið ódýrari en Vantage, en ekki jafn snarbilaður og dýr og DBS Superleggera. Fyrst kom DB 11 með 600 hestafla V12 vél, en árið 2017 bættist við útgáfa með 503 hestafla V8 vél og var það bíll af þeirri gerð sem ég fékk að prófa í Singapúr.

Fyrr á þessu ári bættist svo við DB 11 Volante-blæjubíll, og einnig DB 11 AMR sem er enn kröftugri og sportlegri útgáfa af DB 11 V12. Kaupendur fá síðan fyrstu eintökin af DBS Superleggera í hendurnar síðar á árinu, en hann byggist á sama grunni og DB 11 nema hvað búið er að hækka allar stillingar út fyrir öll velsæmismörk, s.s. með 715 hestafla vél.

Bílablaðamenn hafa almennt verið mjög hrifnir af V8 útgáfunni, því þrátt fyrir að hafa minni vél og færri hestöfl er DB 11 V8 töluvert léttari en V12 útgáfan, með betri þyngdardreifingu og ekki nema 0,2 sekúndum lengur að ná 100km/klst úr kyrrstöðu. DB 11 V8 þykir því á margan hátt skemmtilegra og liprara ökutæki sem flýgur í gegnum hlykkjótta vegi og fer létt með hverja bugðu á kappakstursbraut.

Aston Martin DB 11
Aston Martin DB 11 Ljósmynd / Ásgeir Ingvarsson

Línur með tilgang

En það er ekki hröðunin sem maður hugsar fyrst um þegar maður fær lyklana að DB 11 í hendurnar því það er hreinlega ævintýri að virða þennan bíl fyrir sér í kyrrstöðu. DB 11 er svo svakalega vígalegur, með grill sem minnir á opið gin á hákarli og stæltan afturhluta sem líkist mjöðmunum á kattardýri sem býr sig undir að stökkva á bráð. Útlínurnar eru nútímalegar, en um leið íhaldssamar. Hver bugða þjónar líka tilgangi, og t.d. eru raufarnar ofan við framdekkin ekki bara til skrauts heldur hleypa þær út lofti sem annars mynd safnast saman ofan við dekkin á ferð og skapa þar hvirfla og aðrar truflanir. Raufarnar beina loftstraumnum út og meðfram hliðum bílsins, inn um aðra rauf aftan við farþegagluggann, þar sem loftið þýtur eftir stokki og er síðan hleypt aftur út um raufar á skottlokinu til að búa til n.k. ósýnilega vindskeið.

Þegar sest er í ökumannssætið er síðan eins og allt smellpassi. Rýmið er snyrtilegt, línurnar mjúkar, allt klætt í leður, og frágangurinn eins og best verður á kosið. Eini veiki bletturinn sem hægt er að finna er leiðsöguskjárinn sem lítur út eins og einhver hafi stillt upp spjaldtölvu á miðju mælaborðinu. Glöggir lesendur ættu að kannast við þennan búnað, enda kerfið fengið að láni frá Daimler. Fyrirtækin tvö hafa átt í tæknisamstarfi frá 2013 og þó svo að nýja leiðsögutölvan þyki mikil framför frá því sem Aston Martin notaði áður þá er DB 11 ekki með allranýjasta kerfið frá Damiler – sem mér þykir þess utan gera hugbúnað með frekar óþjálu notendaviðmóti.

Er líka rétt að taka fram að þótt framsætin séu þægileg og lítill vandi að aka DB11 svo mörgum tímum skiptir án þess að finna fyrir minnstu ónotum, þá eru aftursætin tvö agnarsmá og ekki góður staður til að vera á í langan tíma.

Vel fer um ökumenn og farþega í Aston Martin DB …
Vel fer um ökumenn og farþega í Aston Martin DB 11. Ljósmynd / Ásgeir Ingvarsson

„I‘ve been here before...“

Stýrið verðskuldar nokkrar málsgreinar: það er örlar á ferhyrningi í löguninni og alveg hárréttur fjöldi takka við fingurgómana. Við vinstri þumalinn er takki sem breytir styrkleika fjöðrunarinnar og við vinstri þumal takki til að breyta vélinni frá þægindastillingu yfir í Sport og Sport Plus. Ökumaður getur haft fjöðrun og vélarhegðun eins honum hugnast, og t.d. ekkert sem bannar að vera með vélina á Sport Plus-stillingu og fjöðrunina eins mjúka og bíllinn leyfir. Er líka tiltölulega auðvelt að breyta virkni tveggja stjórntakka vinstra og hægra megin, s.s. til að skipta um lag eða útvarpsstöð, sem mér finnst alveg ómissandi.

Reynsluakstursbíllinn kom með staðal-hljóðkerfi sem var samt feikigott, en einnig má panta „premium“ hljóðkerfi eða fá græjur frá Bang & Olufsen. Ég játa að ég stalst til að spila „Writing's on the Wall“, þó að það sé svolítið klént að spila Bond-lag á meðan ekið er um Singapúr í Aston Martin.

Ég hefði líklega sungið með ef fulltrúi Aston Martin hefði ekki verið með mér í bílnum.

Aston Martin DB 11
Aston Martin DB 11 Ljósmynd / Ásgeir Ingvarsson

Glæpsamlegar hvatir

Það er sárasjaldgæft að starfsmaður fylgi með þegar blaðamenn fá bíl að láni. Skýringin er sú að ekki var um eiginlegan pressu-bíl að ræða, heldur venjulegan sýningarbíl, og nauðsynlegt trygginganna vegna að hafa fulltrúa umboðsins með. Ég skil líka að þeir hjá Aston Martin vilji hafa gætur á bílnum, því í skattaparadísinni Singapúr eru lagðir himinháir skattar á ökutæki sem gera bíla á borð við DB 11 nærri þrefalt dýrari þar í landi en í Evrópu.

Svo kom hann Aaron líka í góðar þarfir enda yfirvöld í Singapúr hrifin af hvers lags eftirliti. Lesendur vita eflaust að í þessu vellauðuga borgríki í SA-Asíu er tyggigúmmí bannað og eiturlyfjasalar og -smyglarar geta vænst þess að vera leiddir fyrir aftökusveit. Ætti því ekki að koma á óvart að hraðamyndavélar eru á hverju strái en Aaron, verandi með mikla bíladellu sjálfur, gat sagt mér hvar óhætt væri að gefa bílnum aðeins inn.

Og hvílík sæla. Hvílíkt viðbragð. Hvílíkt vélarhljóð. Hvílíkur draumur. Verst að ég skyldi ekki fá að prufa þennan bíl á þýskri hraðbraut eða lokaðri keppnisbraut.

Ég hugleiddi það á tímabili að binda hann Aaron á höndum og fótum og skilja eftir einhvers staðar, aka af stað í norðurátt, inn í Malasíu, á harðaspretti til Taílands, og eiga nokkra góða daga með bílnum á flótta undan réttvísinni. Kannski yrði ég hólpinn ef ég kæmist til Laos og lofaði einhverjum spilltum lögreglustjóranum þar að fá bílinn að láni um helgar.

Komst svo að þeirri niðurstöðu að kannski væri viturlegra að biðja blaðið um launahækkun og byrja að spara.

Því það er kominn nýr bíll í draumabílskúrinn.

Í hnotskurn
Aston Martin DB 11 V8
4 lítra V8 m forþjöppum
503 hestöfl, 675 Nm
8 gíra rafdrifin sjálfskipting
9,9 l /100km í blönduðum akstri
Úr 0-100 km/klst á 4,0 sekúndum
Hámarkshraði 301 km/klst
Afturhjóladrifinn
255/50 ZR20 að framan, 295/35 ZR20 að aftan
Eigin þyngd: 1.760 kg
Farangursrými: 270 lítrar
Koltvísýringslosun: 230 g/km
Áætlað verð: frá 45.000.000 kr.
Aston Martin DB 11
Aston Martin DB 11 Ljósmynd / Ásgeir Ingvarsson
Útlit DB 11 er í senn íhaldssamt og framúrstefnulegt, yfirdrifið …
Útlit DB 11 er í senn íhaldssamt og framúrstefnulegt, yfirdrifið og lágstemmt. Andstæðurnar mætast í ómótstæðilegum pakka. Ljósmynd / Ásgeir Ingvarsson
Aston Martin DB 11
Aston Martin DB 11 Ljósmynd / Ásgeir Ingvarsson
Aston Martin DB 11
Aston Martin DB 11 Ljósmynd / Ásgeir Ingvarsson
Aston Martin DB 11
Aston Martin DB 11 Ljósmynd / Ásgeir Ingvarsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: