Heillandi og tælandi

Ceed-fjölskyldan samankomin. Fjærst er Ceed, þá langbakurinn, GT og næst …
Ceed-fjölskyldan samankomin. Fjærst er Ceed, þá langbakurinn, GT og næst er svo Xceed. Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson

Frá Kia er að koma á götuna nýr sportjeppi sem bætist í Ceed-fjölskylduna en til aðgreiningar hefur hann hlotið nafnið XCeed. Er þetta jafnframt fimmti jeppi Kia, því fyrir voru þar á stalli Niro, Stonic, Sportage og Sorrento.

Sumum gæti þótt honum ofaukið, en nafngiftin XCeed kann þó að vísa annað og gefa til kynna að þarna sé á ferð aukin og ýkt útgáfa af stallbaknum Ceed. Er sportjeppinn átta sentimetrum lengri og einnig breiðari og hærri en yngri bróðirinn. Nýi bíllinn sker sig líka frá honum að fegurð og mjóslegnum línum. Hefur hann ekki alveg nákvæmlega sama erfðaefnið og Ceed en er einkar aðlaðandi og spennandi bíll.

XCeed er sportlegur og tígulegur, glæsilegur bíll. Má ímynda sér að hann muni berjast um hylli bílkaupenda við módel eins og Peugeot 3008, BMW X2, VW T-Roc, Toyota C-HR og – vegna hágæðabúnaðar – jafnvel við Mercedes-Benz GLA líka. Er ráðist á garðinn þar sem hann er ekki lægstur.

Þetta er ekki til marks um hroka bílsmiða því við hönnun XCeed hefur verið vandað til verka. Ekki síst í innra rýminu, en vönduð efni þekja það nánast að öllu leyti og frágangur allur óaðfinnanlegur.

Samhliða þessu hefur Kia lagt áherslu á búnaðarnýjungar. Með nýjustu tækni í þágu aksturs bílsins og með stafrænum hátæknilausnum í mælaborði. Þar leikur rúmlega 10 tommu skjár aðalhlutverk, en hann er bæði mjög læsilegur og einfaldur í notkun.

Með augun á veginum

Fulltrúar Kia sögðu á blaðamannafundi við reynsluakstur bílsins, að hér væri á ferð endurhönnun frá grunni og frágangur og fyrirkomulag innviða sömuleiðis.

Hægt er að fá XCeed með neyðarbremsum sem greina t.d. gangandi fólk og hjólreiðamenn á ferð. Þá er í boði búnaður er lesið getur umferðarmerki og brugðist við þeim. Þar með er hann að hálfu leyti fær til sjálfaksturs. Þessi tækni er fyrst um sinn takmörkuð við dýrari útgáfur með sjálfskiptum gírkassa.

Það sýndi sig að stjórn- og farþegaklefi býður upp á heilmikið og hefðbundið pláss, eða svipað og í Ceed-módelinu. Þar er allt vel útlítandi. Farangursgeymslan er aftur á móti um 30 lítrum stærri í XCeed, svo sem við var að búast af bíl sem fellur í flokk jeppa.

Hvað vélbúnað varðar er von á tvinnbíl í janúar eða febrúar næstkomandi og mun Askja, sem fer með umboð fyrir Kia-bíla á Íslandi, leggja mikla áherslu á hann í sölu. Drægi hans á rafmagni eingöngu verður um 50 km sem dugar vel til hvers kyns erindisferða innanbæjar. Að öðru leyti verða bæði dísil- og bensínvélar í boði í XCeed, fjögurra strokka, 160 hestöfl að hámarki, sumar með forþjöppu og tvöfaldri kúplingu, allt eftir módelútfærslu. Ég ók aðallega bílum með stærstu vélinni, 1,4 lítra.

Allar útgáfur XCeed verða með útvarpi, skriðstilli, rafdrifnum rúðum allan hringinn, lykillausum aðgangi, birtunemandi díóðuhöfuðljósum, þokuljósum að framan og rafstilltum og upphituðum baksýnisspeglum.

Ánægjulegur á hraðbraut

Við reynsluakstur XCeed í Suður-Frakklandi prófaði ég einungis bensínbíla bæði með sjálfvirkum gírkassa sem og handskiptum. Sá síðarnefndi kom sér vel í umferðarþungum borgum eins og Marseille en sjálfskiptingin var fyrirtak á hraðbrautunum. Slagkraftur hennar hefði mátt vera ögn meiri á litlum hraða, eins og hún vissi þá ekki alveg í hvaða gír hún vildi vera. Þetta er þó smekksatriði og dregur ekkert úr ágæti XCeed.

Í langakstri var XCeed yfirlætislaus og aksturstölvan sýndi átta lítra bensínnotkun á hundraðið við hámarkshraða, 130 km/klst. Það var í raun einstök ánægja að aka bílnum á hraðbrautunum, þökk sé einkar skilvirkum undirvagni. XCeed var lipur og kvikur og einstaklega stöðugur og rásfastur í hröðum beygjum. Ég þurfti að venjast akreinanemanum sem lét mann ekki í friði seildist bíllinn upp á hvítu línurnar. Væri ekki skipt ákveðið og hratt um akreinar var eins og tæknibúnaður þessi reyndi að kippa manni til baka! Sérkennileg tilfinning fylgdi því.

Kia bindur miklar vonir við XCeed-bílinn en kóreski bílsmiðurinn hefur notið velgengni og aukið sölu sína í Evrópu 11 ár í röð. Er það kraftbirtingarform um ágæti bílanna sem frá honum hafa komið.

Kia XCeed

» 1,4 l bensínvél

» 140 hö / 242 Nm

» Sjálfskiptur DCT-7

» 6l/100 km

» 0-100 km/klst. á 9,4 sek.

» Hámarkshraði: 200 km/klst.

» Framhjóladrifinn

» Dekk: 235/45 R18

» Þyngd: 1.270 kg

» Farangursrými: 426 lítrar

» Koltvísýringslosun: 37 g/km

» Umboð: Askja

» Verð frá 4.000.000 kr.

Á nýju ári byrjar tvinnútgáfa af XCeed að renna af …
Á nýju ári byrjar tvinnútgáfa af XCeed að renna af færiböndunum. Drægi hans á rafmagni verður um 50 km. Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
Farangursgeymslan í XCeed er 426 lítra sem er ágætt miðað …
Farangursgeymslan í XCeed er 426 lítra sem er ágætt miðað við stærð. Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
Stafrænar lausnir einkenna mælaborðið.
Stafrænar lausnir einkenna mælaborðið.
Heillandi og tælandi Kia XCeed.
Heillandi og tælandi Kia XCeed. Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
Vélin í Kia XCeed er hverfilblásin.
Vélin í Kia XCeed er hverfilblásin.
Heillandi og tælandi Kia XCeed.
Heillandi og tælandi Kia XCeed. Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
Heillandi og tælandi Kia XCeed.
Heillandi og tælandi Kia XCeed. Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
Viðnámslítil dekkin undir Kia XCeed voru sérfamleidd.
Viðnámslítil dekkin undir Kia XCeed voru sérfamleidd.
Stafrænar lausnir einkenna mælaborðið.
Stafrænar lausnir einkenna mælaborðið. Morgunblaðið/Ágúst Ásgeirsson
Vélin í Kia XCeed er hverfilblásin.
Vélin í Kia XCeed er hverfilblásin.
Kia XCeed er bæði heillandi og tælandi bíll.
Kia XCeed er bæði heillandi og tælandi bíll.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: