Kósí hjá krökkunum

Toyota CH-R sker sig úr hvað útlit varðar og plássið …
Toyota CH-R sker sig úr hvað útlit varðar og plássið aftur í er meira en virðist í fyrstu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Í grunninn eru flestir bílar nokkuð svipaðir. Fjögur hjól, gírskipting, sæti, gluggar, búkur og vél, knúin af jarðefnaeldsneyti, vetni eða rafmagni, eða blöndu af fleiru en einu. Lúxusbílar eru auðvitað oftast skörinni hærri en aðrir bílar, enda meira í þá lagt, en svo eru það bílar sem eru á svipuðu verði og þessir venjulegu en eru dálítið sérviskulegir í útliti.

Það mætti næstum kalla þá hugmyndabíla, þar sem hönnuðir virðast hafa fengið frítt spil við að gera eitthvað aðeins öðruvísi. Þetta á við um bíla eins og Citroen Cactus, og svo bílinn sem ég reynsluók á dögunum, Toyota CH-R með hybrid-vél, þ.e. vél sem notar bæði jarðefnaeldsneyti og rafmagnsmótor, sem hlaðinn er á ferð. Eins og með flesta hybrid-bíla er auðvitað hægt að breyta honum í hreinan rafbíl með EV-stillingunni, á meðan rafmagnið dugar, en þá tekur bensínvélin aftur við.

Minnir á framtíðarökutæki

Að ytra útliti vekur bíllinn með manni ýmis hugrenningatengsl. Hann minnir mann stundum á brynvarinn bíl eða flugvél sem ekki sést á ratsjá, en einnig á framtíðarökutæki sem maður sér í bíómyndunum, jafnvel úr Transformers-kvikmyndum. Bílinn hentar þeim sem hafa gaman af að vekja aðeins athygli úti á vegi, án þess að vera endilega allt of flippaður.

Toyota CH-R er tiltölulega nýr bíll. Hann var fyrst kynntur til sögunnar í heimalandinu Japan í desember árið 2016, en sala í Evrópu hófst árið 2017.

CH-R stendur fyrir Compact High Rider, eða hár hlaðbakur í lauslegri íslenskri snörun. Þannig er bíllinn í raun ekki smájeppi, og ekki venjulegur fólksbíll, heldur einhvers staðar þar á milli.

Þessi nýjasta útgáfa bílsins er aðeins breytt frá fyrri árgerð, einkum að framan og aftan. Sjá má breytingar í t.d. grilli, ljósum og spoiler að aftan. Óþjálfað auga myndi kannski ekki taka eftir þessum breytingum í fljótheitum, en aðrir eru sneggri til.

Hurðarhúnn ofarlega

Eitt sem vekur strax athygli á ytra byrði er staðsetning hurðarhúnsins á afturhurðunum, en hann er mjög ofarlega á þessum bíl, sem þýðir að yngstu meðlimir fjölskyldunnar myndu eiga erfitt með að opna bílinn. En kannski er fjölskyldufólk ekki endilega aðalmarkhópur bílsins.

Bíllinn er afturhallandi, og því eru gluggar í afturhurðum frekar litlir, ásamt því að vera skyggðir. Sömuleiðs er útsýni um afturglugga ekkert frábært.

Maður er orðinn frekar góðu vanur síðustu misseri, en mjög algengt er orðið að afturhlerar séu með rafmagnsopnun og -lokun. Því er ekki fyrir að fara hér, en í staðinn býður Toyota manni upp á sérlega gott grip neðst á hurðinni sem hægt er að grípa í til að skella hleranum aftur.

Skottið er fremur lítið, en það helgast meðal annars af því að hefðbundin rafhlaða bílsins er undir skottgólfinu. Bíllinn hentar því ekki vel til langferða með mikinn farangur. Til sitthvorrar hliðar í skotti eru geymsluhólf. Vinstra megin er opið hólf og hægra megin lokað. Þarna má koma fyrir hlutum sem gott er að láta fylgja bílnum, eins og bóni, tuskum, rúðusköfum eða því um líku. Snagar eru einnig í boði, fyrir töskur eða innkaupapoka, og hankar eru í gólfi sem hægt er að reyra niður dót með.

Aftursætispláss kom á óvart

Þegar ég fór að huga að því að setjast aftur í bílinn og bregða mér í hlutverk aftursætisfarþega var það í sjálfu sér ekkert tilhlökkunarefni, því utan frá séð virðist sem plássið sé frekar lítið fyrir fullorðinn karlmann. Plássið kom þó aðeins á óvart, þótt auðvitað sé fótaplássið ekki mikið. Ég gat þó rétt vel úr hálsinum og rak mig ekki upp undir. Í hurðum er fínasti glasahaldari en enginn slíkur er í miðjunni, eins og stundum er þegar hægt er að fella niður einingar innan úr miðjusæti.

Aftursætisfarþegar geta líka, ásamt því að leggja frá sér drykk í glasahaldarana, sett blöð eða dót í litla vasa aftan á framsætunum.

Það sem vakti mesta hrifningu þegar fram í bílinn var komið, eftir prufusetu aftur í, var innréttingin sjálf. Háglansandi plastefni í miðju og í hurðum, sem gefur bílnum ákveðinn glæsileika. Og til að toppa það hefur Toyota látið blátt ljós inn í allt saman, sem gerir þetta enn glæsilegra þegar degi tekur að halla og birtu að bregða úti.

Þá er hnúðurinn á gírstönginni silfurlitaður og skínandi fínn.

Í miðjunni er pláss fyrir tvo drykki, og í öðru statífinu er falskur botn sem hægt er að taka úr ef maður er með stærri hitabrúsa sem þarf að leggja frá sér.

Sætin sjálf eru sérlega þægileg og sportleg og grípa þétt um mann meðan á akstri stendur. Í raun fer mjög vel um ökumann í akstri, en hann nýtur þess að auki að hafa helstu nútíma öryggistæki sér til aðstoðar, eins og veglínuskynjara og slíkt.

Ágætur hiti er í sætum, en hitinn í stýrinu, sem er aufúsugestur á okkar ísakalda landi, fannst mér ekki nógu jafn allan hringinn.

Útsýni yfir upplýsingakerfið sem er á skjá í miðri innréttingunni er gott, en kerfið er þó aðeins rýrari að virkni og innihaldi en í mörgum öðrum bílum. Til dæmis er ekki hægt að stjórna þar loftræstingunni, sem er í staðinn á hefðbundnum stað fyrir neðan.

Hanskahólfið er viðunandi að stærð, og hægt er að smeygja auka flöskum í hólf í hurðum.

Lét vel að stjórn

Ef maður vill losna við símann úr vasanum er hægt að skutla honum í hleðslu í miðjuna, aftan við gírstöngina, þar sem USB-tengi er til staðar.

Í akstri er ekki hægt að kvarta yfir neinu. Viðbragðsflýtirinn var ágætur, bíllinn lét vel að stjórn, og veghljóð var lítið. Það var gaman að gefa honum inn, og hann lá vel í beygjum.

Ég fór með dætur mínar í bíltúr og þær nutu sín ágætlega í aftursætinu. Meira að segja fannst þeim bíllinn dálítið hlýlegur, enda er afturrýmið ekki mjög stórt, rúður litlar og skyggðar, sem gerði allt pínu kósí.

Boðið er upp á lyklalaust aðgengi að bílnum, og þegar hurðin er opnuð sést vörumerkið, Toyota C-HR, lýsa upp gangstéttina, sem gleður og kætir og gerir bílferðina enn skemmtilegri en ella.

Toyota C-HR Hybrid

» 2,0 l tvinn-bensínvél

» 184 hö / 190 Nm

» CVT sjálfskipting

» 0-100 km/klst á 8,2 sek.

» Framdrif

» 18", álfelgur

» 95 g/km NEDC 119 WLTP í blönduðum akstri

» 4,0 l NEDC 5,2 l WLTP í blönduðum akstri

» Eigin þyngd 1.485 kg

» Farangursrými 358 l til 1.102 l

» Verð frá 5.540.000 kr

Bíllinn lætur vel að stjórn og staðsetning upplýsingakerfisins er góð.
Bíllinn lætur vel að stjórn og staðsetning upplýsingakerfisins er góð. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Tveggja lítra Hybrid-bensínvél er í bílnum og skilar sínu ágætlega.
Tveggja lítra Hybrid-bensínvél er í bílnum og skilar sínu ágætlega. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Mælaborðið er einfalt og smekklegt og hægt að skruna í …
Mælaborðið er einfalt og smekklegt og hægt að skruna í gegnum ýmsa valmöguleika í miðju þess. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Toyota CH-R tvinnbíllinn.
Toyota CH-R tvinnbíllinn.
Smávægilegar breytingar hafa orðið á afturhluta bílsins.
Smávægilegar breytingar hafa orðið á afturhluta bílsins.
Ljósin að framan eru lítið eitt breytt frá síðustu árgerð.
Ljósin að framan eru lítið eitt breytt frá síðustu árgerð.
Bíllinn er að mörgu leyti óvenjulegur útlits
Bíllinn er að mörgu leyti óvenjulegur útlits mbl.is/Eggert Jóhannesson
Bíllinn er að mörgu leyti óvenjulegur útlits
Bíllinn er að mörgu leyti óvenjulegur útlits
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: