Þýður og þægilegur

Mitsubishi Eclipse Cross er vígalegur að sjá, þótt hann sé …
Mitsubishi Eclipse Cross er vígalegur að sjá, þótt hann sé enginn sportbíll í akstri, heldur notalegur og notadrjúgur fjölskyldujepplingur. Hann kann bæði á snjó og möl,en á lítið erindi utanvega. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mitsubishi Eclipse Cross PHEV er tvinngerð á grunni bensínútgáfunnar af Eclipse Cross, sem raunar hefur fengið ágæta andlitslyftingu. Þetta er fjölskyldujepplingur og um margt sportlegri að sjá en menn eiga að venjast frá Mitsubishi, en þar á bæ eru menn yfirleitt frekar íhaldssamir í útlitshönnun.

Þrátt fyrir útlitið er Eclipse Cross enginn sportbíll, heldur þægilegur fjölskyldubíll, góður í innanbæjarsnattið en líka alveg prýðilegur í langferðir, svona að því marki sem drægið leyfir. Eclipse Cross PHEV getur farið allt að 45 kílómetra á rafmagninu eingöngu, en með 2,4 lítra sparneytinni bensínvél og 13,8 KWst rafhlöðu má komast allt að 600 kílómetra á tankinum. Þar fyrir utan endurhleðst rafhlaðan með við hemlun eða þegar ekið er niður á við. Það er því vel hægt að fara í sæmilega langan akstur án þess að fyllast hleðslukvíða.

Sem fyrr segir er þetta sportlegur bíll að sjá og það á líka við um innra byrði bílsins. Þar hefur talsvert meira verið lagt í hann en áður og hann er þægilegur að vera í, hvort sem er í stuttum ferðum eða löngum.

Rúmgóður að innan

Lítið er hægt að finna að áferðargóðri umgjörð ökumannsins.
Lítið er hægt að finna að áferðargóðri umgjörð ökumannsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson


Þetta er ekki bíll í yfirstærð, en samt sem áður er mjög drjúgt pláss um ökumann og farþega fram í og alls ekki slæmt fyrir farþegana aftur í heldur. Þar geta fullorðnir vel komið sér fyrir til langferða án þess að kúldrast. Það þýðir að vísu að farangursrýmið er örlítið minna en búast mætti við, en þar má samt koma fyrir fullum helgarinnkaupum, nokkrum hóflegum ferðatöskum, nú eða barnakerru.

Fyrir ökumanninn er þetta þægilegur bíll að sitja í, allt vel innan seilingar og snertiskjárinn hárrétt staðsettur, svo það þarf ekki að teygja sig í hann og hann er líka með sneriltökkum til þess að létta lífið í akstri. Og það er nóg af öllum þessum fídusum sem gera aksturinn þægilegri og öruggari, með bakkmyndavél og akstursviðvörunarkerfi, sætishiturum, hleðslutengjum fyrir síma og öllu því.

Þegar bíllinn er ræstur (lykillaust auðvitað) opnast lúga ofan á mælaborðinu og upp sprettur lítill sjónlínuskjár sem sýnir hraðann. Það er svolítill James Bond-bragur á græjunni, en hins vegar veltir maður því fyrir sér hvort þar sé ekki fullmargt sem geti bilað eftir því sem tíminn líður, hvort ekki hefði mátt varpa þeim upplýsingum beint á rúðuna.

Rólyndislegur í akstri

Afturrúðan er aðeins minni og ekki lengur tvískipt. Sem er …
Afturrúðan er aðeins minni og ekki lengur tvískipt. Sem er til bóta.


Sem fyrr segir er þetta sportlegur bíll að sjá, en hann er ekki tiltakanlega sportlegur í akstri. Þannig er hann ekki með neitt sérstakt viðbragð þótt hraðapinninn sé stiginn í botn. Ekki svo að það sé til neinna vandræða, en kemur samt eilítið á óvart. Eins eru aksturseiginleikarnir bara svona og svona, hann getur verið svagur í beygjum, maður finnur svolítið fyrir misfellum á veginum og hraðahindranir eru ekki vinir þessa bíls.

En hann er þægilegur að öðru leyti og þegar maður er kominn á beinu brautina er fínt að láta hraðastillinn á og láta bílinn líða áfram. Það er fyrir slíkan akstur, sem fjöðrunin er gerð, og af því þetta er fjölskyldujepplingur, þá er það að líkindum einmitt sá akstur sem hann er notaður í. Það fær sér enginn svona bíl til þess að fara í spyrnu eða bílaeltingaleiki í Þingholtunum.

Léttur í stýri

Það er ágætis rými fyrir farangur aftur í, en farangursrýmið …
Það er ágætis rými fyrir farangur aftur í, en farangursrýmið er minna fyrir vikið


Það þarf hins vegar að hrósa stýrinu, það er létt og nákvæmt, frábært til að leggja honum í þröngt stæði í Kringlunni, en kannski síðra þegar komið er á möl. Í því samhengi verður þó að minnast á að það má stilla bílinn fyrir akstur á möl (eða í snjó þótt ekki hafi reynt á það í reynsluakstrinum) og sú stilling virkaði ágætlega.

Þegar bensínvélin er keyrð heyrist líka að þetta er enginn sportbíll, það er svona frekar óspennandi niður án þess að það sé nokkur galli. Eiginlega alveg eins og maður býst við fjölskyldubíl í þessum flokki, kannski alveg eins og það á að vera í svoleiðis bíl.

Hljóðlátur en hefur vindgnauð

Það er nær að tala um gírhnúð en -stöng. Hann …
Það er nær að tala um gírhnúð en -stöng. Hann er þægilegur í notkun.


Hins vegar er eilítið skrýtið að þó að maður finni lítið fyrir vélarhljóði eða veghljóði, þá lekur miklu meira vindhljóð inn í bílinn en búast mætti við, aðallega við frampóstana.

Ef vindurinn truflar er er gott að láta tónlistina tempra það. Hljómgæðin eru ágæt í bílnum (og má stilla mikið að eigin smekk), en græjurnar eru ekki yfirmáta kraftmiklar. Græjurnar eru að vísu eitthvað mismunandi eftir tegundum og þá geta menn tengt snjallsímana við til þess að gera alls kyns kúnstir.

Innra byrðið er sem fyrr segir þægilegt og það er líka frekar smekklegt án þess að vera íburðarmikið.

Efnisvalið er gott og þótt nóg sé af plastinu, þá er það hvorki ódýrt í útliti né viðkomu. Það er ekki leður á sætunum, en efnið er sterklegt og þægilegt (og lítur út fyrir að það sé auðvelt að þrífa það ef ísbíltúrinn endar með ósköpum).

Praktískur fjölskyldubíll

Felgurnar eru býsna sportlegar, sem hæfir útlitinu á Eclipse Cross.
Felgurnar eru býsna sportlegar, sem hæfir útlitinu á Eclipse Cross. mbl.is/Eggert Jóhannesson


Þar sem þetta er tvinnbíll má gera ráð fyrir að reksturinn á honum verði ekki verulega þungbær, þó að tölurnar gefi til kynna að hann sé ekki yfirmáta sparneytinn.

En hann er afar þægilegur í öllum venjulegum akstri fyrir vísitölufjölskylduna með nægt rými að innan, en hóflega mikið að utan, svo að það er auðvelt að fara um þröngar götur og í þröng stæði. Enn frekar auðvitað þar sem sjá má afstöðu nálægra bíla, auk þess sem bakkmyndavélin kemur sterk inn þegar mest á reynir.

Þegar það þarf meira pláss undir farangur en skottið leyfir má svo vitaskuld leggja sætin aftur og þá er hann talsvert notadrýgri en ætla mætti í fyrstu.

Öll þessi þægindi koma svo einnig í góðar þarfir á lengri ferðum og sætin eru fullboðleg í slík ferðalög.

Fjölskyldubíll í dulargervi

Vélarrýmið er vel notað í þessum tvinnbíl, öllu vel fyrirkomið.
Vélarrýmið er vel notað í þessum tvinnbíl, öllu vel fyrirkomið. mbl.is/Eggert Jóhannesson


Hið eina, sem út á mætti setja er að snerpan mætti vera ögn meiri, en á móti kemur að það er ekki unnt að gera of miklar kröfur að því leyti á bíl, sem er ætlaður sem fjölskyldubíll. Þar er það kannski einmitt sportlegt útlitið sem vekur einhverjar óraunhæfar og óþarfar vonir um slíkt. Þetta er nefnilega fjölskyldubíll í dulargervi.

En meðan maður lætur það ekki setja sig út af laginu og man eftir því til hvers þessi bíll er gerður, þá eiga menn að vera ánægðir með Mitsubishi Eclipse Cross.

Í því samhengi er líka rétt að hafa verðið í huga sem er ágætt, sérstaklega auðvitað tilboðsverðið, þótt síðan megi auðvitað bæta við það með aukabúnaði eftir því sem hugurinn býður.

Mitsubishi Eclipse Cross PHEV

» Bensínvél 2,4 l, fjórir

ventlar og

tveir rafmótorar.

» Fjórhjóladrif

» 204 hö., 184 Nm

» 0-100 km/klst. á 10,9 sek.

» Hámarkshr. 162 km/klst.

» CO2 losun 46 g/km

WLTP (39 NECD)

» Eyðsla í blönduðum

akstri 1,7 l /100 km

» Eigin þyngd: 1.900 kg

» Umboð: Hekla

» Verð frá 5.390.000 kr.

(kynningarverð

4.990.000 kr.)

» Verð á prófuðum

bíl - 6.290.000 kr.

(kynningarverð

5.890.000 kr.)

Afturendinn á Eclipse Cross er með hefðbundnu lagi, raunar hefðbundnara …
Afturendinn á Eclipse Cross er með hefðbundnu lagi, raunar hefðbundnara en á fyrri árgerðum. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: