Bílabóndinn Jay Leno tók nýlega til kostanna væntanlegan arftaka HMMWV-herjeppanna (sem við þekkjum sem Hummer) sem Bandaríkjaher notar.
Í stað þess að fá bílaframleiðanda til að hanna og smíða bíl fyrir sig, líkt og gert var með Hummerinn, sá herinn sjálfur um hönnun og smíði F.E.D, sem stendur fyrir Fuel Efficient Demonstrator, eða Sparneytið sýnieintak.
Markmiðið var að smíða bíl sem gæti gegnt svipuðu hlutverki og Hummer en myndi eyða 30% minna eldsneyti, eða að hámarki 33 lítrum á hundraðið. Það kann að hljóma eins og mikið en ef haft er í huga að F.E.D. vegur 6,8 tonn verður það að teljast skiljanlegt.
Ennfremur er ber að hafa í huga að Bandaríkjaher notar mörghundruð þúsund bíla af þessum toga, svo 30% minnkun í eyðslu er fljót að skila sér í stórar upphæðir.
Nokkur fyrirtæki og stofnanir komu þó að vinnunni við bílinn, þar á meðal álfyrirtækið Alcoa sem hefur væntanlega lagt til sérfræðikunnáttu um ál, en yfirbygging bílsins er úr áli, koltrefjum og skotheldu stáli.
Bíllinn er fjórhjóladrifinn og knúinn 200 hestafla 4,2 lítra, 4 strokka Cummins-mótor sem getur gengið á dísilolíu eða lífdísil.
Á farangursloki bílsins er sólarrafhlaða en eldsneytistankar hans rúma 100 lítra af eldsneyti, svo það dugar varla frá Reykjavík til Akureyrar. Nú er bara spurning hvort framleidd verði „borgaraleg“ útgáfa fyrir almenning, líkt og Hummerinn.
Sjáið Leno fræðast um Alcoa-jeppan F.E.D., og fara í prufubíltúr, í myndbandinu hér að neðan.