Kvartmílukeppni á laugardag

Það eru oft mikil átök þegar bílarnir aka af stað …
Það eru oft mikil átök þegar bílarnir aka af stað á kvartmílunni Morgunblaðið/Sverrir

Næstkomandi laugardag, þann 29. júní, mun fara fram keppni í kvartmílu. Kvartmílukeppnin hefst klukkan fjórtán og fer að vanda fram á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði, er þetta önnur umferð Íslandsmeistaramótsins í kvartmílu. Skráningarfrestur fyrir þá sem ætla að taka þátt er liðinn og hefur þónokkur fjöldi skráð sig til keppni, bæði í bíla- og mótorhjólaflokkum.

Nánari upplýsingar um keppnishaldið má finna á heimasíðu Kvartmíluklúbbsins en dagskrána má sjá hér að neðan

 

laugardagurinn 29. júní

9:30 - 10:30 mæting keppanda og skoðun ökutækja
10:30      pittur lokar
11:00      fundur með keppendum
11:15 - 12:10 æfingaferðir
12:10      tímatökur hefjast
13:20      tímatökum lýkur
13:20 - 13:50 hádegishlé
13:50      keppendur mættir við sín tæki

14:00      keppni hefst

15:30      keppni lýkur, kærufrestur hefst
16:00      kærufresti lýkur
16:30      verðlaunaafhending

mbl.is