Löður með Rain-X á allan bílinn

Miklar endurbætur hafa verið gerðar á svampburstastöð Löðurs á Fiskislóð 29 þar sem nýr hugbúnaður hefur verið tekin í notkun auk þess sem boðið er upp á þá nýjung að yfirborðshylja allan bílinn með Rain-X.

„Við erum að bjóða upp á Rain-X á allan bílinn en þetta efni er vel þekkt um allan heim og býður upp fullkomna yfirborðsvörn á bílinn. Það gefur okkur sérstöðu að við erum að yfirborðshylja allan bílinn með Rain-X en ekki bara framrúðuna eins og hefur tíðkast víða,“ segir Páll Magnússon, rekstrar- og tæknistjóri Löðurs í tilkynningu.

Páll segir að svampburstastöðin hafi verið endurbætt og m.a. hafi verið fenginn fullkominn tölvuhugbúnaður sem hefur verið m.a. settur upp hjá Audi í Þýskalandi.

„Þetta er raunar ný stjórnstöð sem gerir alla vinnsluna á þessum 55 metra löngu þvottabraut öruggari og skilvirkari. Þvotturinn fer fram með fínustu nákvæmni. Við önnum einnig fleiri bílum sem þýðir að það dregur úr biðtíma viðskiptavina á háannatímum,“ segir hann og bætir við að boðið sé upp á dekkjasvertu sem er einnig nýjung og auk þess ný efni. Löður býður einnig upp á Rain-X á allan bílinn á snertilausu þvottastöðvum fyrirtækisins á Fiskislóð 29 og Grjóthálsi 8.




mbl.is