Rafbíllinn VWs e-Golf á götuna í Þýskalandi

Volkswagen e-Golf við hleðslustöð.
Volkswagen e-Golf við hleðslustöð. mbl.is/Volkswagen

Þá er að því komið, söluhæsti bíll Evrópu, Volkswagen Golf, er kominn á götuna í rafútgáfu. Segir VW að hann dragi 190 kílómetra á fullri rafhleðslu. Uppgefinn hámarkshraði er 140 km/klst.

VW e-Golf var frumsýndur á bílasýningunni í Frankfurt í fyrrahaust og er kominn fjöldaframleiddur á götuna í Þýskalandi og kostar þar frá 34.900 evrum eða sem svarar  tæplega 5,5 milljónum króna.

E-Golf bætist í rafbílaflota VW sem e-up! og eco-up! tilheyra nú þegar. Hann er nær alveg eins innandyra sem utan og Golf knúinn bensínvél. 

Eins og áður segir er dragið allt að 190 km á fullum rafgeymum en það fer þó eftir akstursham og ökustíl bílstjóra. Kostnaður við að keyra 100 kílómetra er sagður 3,28 evrur, eða um 500 krónur.

Rafgolfinn er knúinn 85 kílóvatta rafmótor sem skilar 114 hestöflum og orkuna fær hann frá 24,2 kílóvattstunda litíumjóna rafgeymi. Upptakið, torkið, er sagt 270 newtonmetrar sem gerir það að verkum að hann kemst úr kyrrstöðu í 100 km/klst ferð á 10,4 sekúndum.

Um þrenns konar akstursham er hægt að velja og fjögur stig endurnýtingar hemlunarorkunnar. Þannig getur ökumaður stillt getu bílsins og skilvirkni eftir þörfum. VW e-Golf er framdrifinn.

Rafbíllinn Volkswagen e-Golf er kominn á götuna í Þýskalandi.
Rafbíllinn Volkswagen e-Golf er kominn á götuna í Þýskalandi. mbl.is/Volkswagen
Í e-Golf er að finna 85 kW, eða 114 hestafla, …
Í e-Golf er að finna 85 kW, eða 114 hestafla, rafmótor sem fær afl frá 24,2 kWh litíumjóna rafgeymi.
Innandyra lítur allt út eins og í venjulegum bensínvélar Golf.
Innandyra lítur allt út eins og í venjulegum bensínvélar Golf.
Þrenns konar akstursham er hægt að velja og fjögur stig …
Þrenns konar akstursham er hægt að velja og fjögur stig endurnýtingar hemlunarorku. Þannig getur ökumaður stillt getu bílsins og skilvirkni eftir þörfum. mbl.is/Volkswagen
mbl.is