620 hestafla tryllitæki í Reykjavík

Fáir bílar hafa vakið viðlíka athygli í umferðinni hér á landi og Ferrari nokkur, rauður að lit. Bíllinn var skráður fyrir um tíu dögum og loguðu netheimar vegna gripsins. Bílablaðamaður Morgunblaðsins varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að taka í græjuna og ljóst er að bíltúrinn góði gleymist ekki svo glatt!

620 hestöfl og 3,7 í hundraðið

Að heyra nafnið Ferrari er eitt og sér nóg til að áhugafólk um bíla kippist við. En til að fara nánar ofan í saumana á þessum tiltekna bíl þá er þetta Ferrari 599GTB (Grand Tourer Berlinetta), tveggja sæta bíll með 6.0 l. Tipo F140C V12 vél sem skilar góðum 620 hestöflum og er 3,7 sek úr kyrrstöðu upp í hundrað kílómetra hraða. Ef ég færi að lýsa tilfinningunni við akstur þessa bíls myndi einhver sennilega benda mér á að gefa bara út ljóðabók. Þess vegna læt ég eitt orð nægja: Stórkostlegt!

Þetta eintak er frá árinu 2006 og var breytt af þýska fyrirtækinu Novitec sem sérhæfir sig í breytingum á Lamborghini, Ferrari og Maserati. Bíllinn er með 21" felgum að aftan og 20" að framan. Að aftan eru sérsmíðuð Pirelli dekk 355/25/21 fyrir Saleen, Murecelagio og Novitec. Fyrir áhugasama þá má geta þess að felgur og dekk að framan eru 275/30/20.

Bíllinn er sérbúinn KW Race-dempurum sem tengdir eru vökvakerfi sem getur hækkað bílinn að framan sem kemur sér ákaflega vel á hinu hraðahindranaskreytta höfuðborgarsvæði. Þá er einfaldlega ýtt á takkann og hann hækkar sig um 25 mm. Hann lækkar sig sjálfkrafa þegar farið er yfir 80 kílómetra hraða. Þetta er ekki búið því bíllinn er með ECU upgrade, því sama og 599 GTO-bíllinn sem gefur hraðari skiptitíma, eða 60 millisekúndur. Bremsurnar eru ótrúlega magnaðar en í bílnum eru Ceramic-bremsur sem er eins gott því það þarf eitthvað almennilegt til að stöðva 620 hestafla tryllitækið. Að innan er bíllinn stílhreinn og ekkert verið að flækja málin um of með óþörfum tökkum hér og þar. Í stýrinu eru stillingartakkar sem kallast „Manettino“ og svara til þess sem er að finna í F1 kappakstursbílum. Undirrituð ók að mestu með stillt á Race Mode. Sætin eru úr karboni og leðri, Daytona style.

Aðrir ökumenn hættulegir

Það reyndist hin mesta þraut að mynda þennan fallega bíl því hvar sem stöðvað var þyrptist fólk að og flestir með síma á lofti til að taka mynd af bílnum. Það var nú ekki það versta því fjölmargir ökumenn í umferðinni á fallegum laugardagseftirmiðdegi í borginni, tóku upp myndavélasíma og smelltu af í miðjum akstri. Einn daginn á rauði Ferrari-inn eftir að valda upplausnarástandi í umferðinni. Það var kúnstugt að upplifa þetta. Til að mynda ók einn næstum út af þar sem hann snéri sér við og tók mynd af bílnum í stað þess að hafa augun á veginum. Þykist ég viss um að það var verið að mynda bílinn en ekki bílstjórann. Í það minnsta skapast þessar aðstæður sjaldnast þegar ég ek um á mínum tuttugu og þriggja ára Justy.

Það er spurning hvort bíllinn hætti að vekja slíka athygli á götunni en hann er og verður alltaf áberandi fallegur. Og hljóðið maður! Það er nú nóg til þess að allir í ákveðnum radíus frá bílnum fái gæsahúð um allan skrokk. 6 lítra V12 vél skilar undurfögrum hljóðum sem jafnast á við fegurstu tónlist.

Hesthús eða Ferrari?

Árið 2006 var verðmiðinn á svona bíl, fyrir utan breytingarnar hjá Novitec eitthvað um 240.000 evrur í Þýskalandi þannig að sú spurning vaknar hvort það sé ekki rándýrt að fjárfesta og reka þennan 620 hestafla bíl. Eigandi bílsins svarar að bragði: „Það er ódýrara að fjárfesta og reka þennan 620 hesta bíl heldur en til dæmis að eiga hesthús með aðeins tveimur hestum.“ Kallar þetta á frekari útskýringar? Ég held ekki.

malin@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina