Komumst ekki niður fyrir tvö prósentin

Ágæti þess að spenna bílbeltin kemur glöggt í ljós í …
Ágæti þess að spenna bílbeltin kemur glöggt í ljós í veltibílnum. Á hvolfi í honum finna menn vel til öryggis bílbeltanna. Ljósmynd/BFÖ

Um 2% barna í bílum við leikskóla á Íslandi eru enn laus í bílnum samkvæmt niðurstöðum könnunar, sem Slysavarnafélagið Landsbjörg, Sjóvá, VÍS og Samgöngustofa gerðu haustið 2015 á öryggi barna í bílum.

Sambærilegar kannanir hafa verið gerðar undanfarin 30 ár en árið 1985 voru um 80% barna alveg laus í bílum, að því er fram kemur í fréttaskýringu um þetta mál í Morgunblaðinu í dag.

Könnunin í haust var gerð við 60 leikskóla í 25 bæjarfélögum víða um land með 2.236 þátttakendum. Það þýðir að um 45 börn voru laus í bílnum þegar komið var með þau í leikskólann.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: