Nýr Leaf til Íslands í apríl

Nissan hefur svipt hulunni af nýrri kynslóð mest selda rafmagnsbíls heims, Nissan Leaf, sem væntanlegur er á markað í Evrópu á næsta ári. Von er á honum til Íslands í apríl nk.

Bíllinn hefur tekið miklum og jákvæðum breytingum í samræmi við hönnun annarra nýrra bíla frá Nissan svo sem nýjum Micra og Qashqai svo dæmi séu tekin. Nissan Leaf fer á Japansmarkað í næsta mánuði og í byrjun næsta árs til Norður-Ameríku og helstu lykilmarkaða í Evrópu. Gert er ráð fyrir nýjum Leaf til BL, umboðsaðila Nissan á Íslandi, í apríl 2018.

Nýr Leaf er stærri en núverandi kynslóð, bæði örlítið lengri og breiðari og einnig með
hærri yfirbyggingu. Meðal helstu nýjunga má nefna öflugri aflrás. Leaf verður einnig búinn öllum helstu tækninýjungunum frá Nissan sem auka í senn aksturseiginleika, þægindi, samskiptatækni og ekki síst öryggi ökumanns og farþega.

e-Pedal

Sem dæmi má nefna nýjan bremsunæman orkufetil (e-Pedal) sem ekki aðeins eykur
hraðann þegar stigið er á hann heldur hægir hann einnig með virkum hætti á
bílnum þegar fætinum er lyft af gjöfinni, uns hann stöðvast alveg. Þennan búnað þarf að
virkja sérstaklega og þarf þá ekki að nota bremsufótstigið á meðan, nema stöðva þurfi
bílinn snögglega.

ProPILOT

Meðal annarra nýjunga má nefna tæknikerfið ProPILOT sem aðstoðar ökumann við
aksturinn með því að halda bílnum á sinni akrein og stjórna hraðanum í samræmi við
umferðarþunga hverju sinni. Stöðvast bíllinn sjálfkrafa fyrir aftan næsta bíl þegar
aðstæður krefjast svo dæmi sé tekið. Einnig getur ProPILOT lagt bílnum með öruggum hætti í stæði sem getur verið afar þægilegt fyrir ökumann þar sem aðstæður eru þröngar.

Kraftmeiri og langdrægari

Nissan mun á næstu mánuðum kynna nýja og öflugri aflrás sem boðin verður með
nýjum Leaf og þeir geta valið sem þurfa að jafnaði að aka um lengri veg. Bæði er um að
ræða öflugri rafmótor og nýja háorkurafhlöðu sem skila Leaf lengra fram á veginn eða
allt að 380 km við bestu aðstæður.

3,6 milljarðar kílómetra

Nissan kynnti rafmagnsbílinn fyrir almenningi árið 2010 og hlaut Leaf strax góðar
móttökur. Enginn rafmagnsbíll á almennum markaði hefur selst í jafn mörgum eintökum og Leaf. Í heild hefur bílum af tegundinni Leaf verið ekið 3,6 milljarða kilometra frá því að bíllinn kom á markað og hafa enn engar alvarlegar bilanir komið upp í honum.

Með Leaf umbreytti Nissan alþjóðlegum bílaiðnaði og hefur opnað augu fjölda fóks fyrir kostum rafmagnstækninnar, þar á meðal ökumanna sem annars hefðu aldrei valið rafmagnsbíl. Leaf er nú á markaði í 49 löndum þar sem rúmlega 380 þúsund slíkir bílar eru í umferðinni. Bíllinn hefur hlotið á annað hundrað verðlauna, þar á meðal sem bíll ársins í nokkrum löndum og einnig bíll ársins á alþjóðavísu.

mbl.is