Forsýning á Skoda Karoq

Hinn glænýji Skoda Karoq verður forsýndur á bílasýningu Heklu, laugardaginn …
Hinn glænýji Skoda Karoq verður forsýndur á bílasýningu Heklu, laugardaginn 6. janúar.

Forsýning á Skoda Karoq 

Það stendur mikið til laugardaginn 6. janúar, milli klukkan 12 og 16, þegar Hekla heldur sína árlegu bílasýningu í salarkynnum við Laugaveg 170 – 174. Til sýnis verður allt það nýjasta og ferskasta frá Audi, Mitsubishi, Skoda og Volkswagen en aðalnúmer dagsins eru Skoda Karoq, Volkswagen T-Roc, Polo, Skoda Octavia RS245 og Skoda Octavia Scout.

Skoda Karoq er rúmgóður og vel útbúinn bíll með allt að 1,630 lítra farangursrými, LED framljós og er fyrsti bíllinn frá Skoda sem hægt er að fá með stafrænu mælaborði, eins og fram kemur í fréttatilkynningu. Karoq státar af einum virtustu bílaverðlaunum Evrópu, Golden Steering Wheel, og er með fimm stjörnur í árekstrar- og öryggisprófunum hjá Euro NCAP.

Nóg af nýjum bílum

Volkswagen T-Roc er spánýr sportjeppi sem fæst bæði fjór­hjóla- og fram­hjóla­drif­inn, bein­skipt­ur og sjálf­skipt­ur. Véla­úr­valið spann­ar allt frá 115 hestafla þriggja strokka vél upp í 190 hestafla bens­ín­vél. Hann er bú­inn nýjustu tækni og búnaði og er fá­an­leg­ur í sautján lit­um, með hvítu eða svörtu þaki.

Sjöttu kynslóðar Volkswagen Polo hefur verið beðið eftir í nokkurn tíma og þykir hún hafa heppnast einkar vel en Polo fagnar 42 ára afmæli sínu um þessar mundir. Polo hefur stækkað töluvert og er sportlegur sem aldrei fyrr.

245 hestafla töffarinn Skoda Octavia RS245 er kraftmesta Octavian sem framleidd hefur verið og eftirtektarverð eftir því. Þá hefur fjölskyldubíllinn Skoda Octavia Scout fengið andlitslyftingu, er með aukna veghæð og er ríkulega búinn tæknilausnum.

Vistvænn afsláttur hjá VW

Volkswagen leggur sem fyrr sitt lóð á vogarskálarnar í umhverfismálum og hefur nýtt ár með verðlækkun á vistvænum bílum. Afslátturinn er misjafn eftir tegundum en er allt að 15%. Úr nógu er að velja því Volkswagen býður átta bíla sem ganga fyrir rafmagni og metan. Að auki teflir Volkswagen fram miklu úrvali af glænýjum gerðum á borð við sjö sæta Tiguan Allspace og Volkswagen Arteon, segir ennfremur í tilkynningunni.

Audi er einnig í vistvænu stuði og býður einstaklega vel útbúinn Audi Q7 e-tron með 700.000 kr. afslætti. Q7 e-tron gengur fyrir rafmagni og dísil og er gríðarlega vinsæll og vistvænn kostur fyrir þá sem er umhugað um sitt ytra og innra umhverfi.

Þjónustan er í fyrirrúmi hjá Mitsubishi sem kynnir tilboð á vinsælasta jepplingi Íslands árið 2017, Mitsubishi Outlander PHEV. Öllum seldum Outlander PHEV fylgir nú frí þjónustuskoðun í tvö ár en hann kemur einnig með fimm ára ábyrgð eins og aðrir fólksbílar Heklu.

Þorir þú í Annie Mist?

Auk úrvals bíla verður margt um að vera í öllum sýningarsölum. CrossFit kempan Annie Mist Þórisdóttir skorar á gesti í skemmtilegum þrautum. Í boði verður ljúfmeti frá Dunkin Donuts og rjúkandi kaffi frá Kaffitár auk þess sem veltibíllinn vinsæli og eitursnjallt blöðrulistafólk verður á staðnum.

60% hlutdeild í vistvænum bílum

„Það er orðin hefð fyrir því hjá Heklu að fagna nýju ári með bílasýningu og árið í ár er engin undantekning,“ segir Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu. Hann segir síðasta ár hafa verið gott og að 2018 leggist vel í hann. „Hekla hélt leiðandi stöðu í sölu á vistvænum bílum og er með 60% markaðshlutdeild í þeim flokki. Við slógum í gegn með Mitsubishi Outlander PHEV sem var vinsælasti jepplingur ársins og næst söluhæsti bíll landsins. Við sláum hvergi af á þessu ári og höldum áfram að bjóða úrval fjölbreyttra farkosta. Á bílasýningunni forsýnum Skoda Karoq, frumsýnum VW T-Roc, og bæði Skoda Octavia RS245 og Octavia Scout. Að auki verðum við með úrval tilboða og alls kyns skemmtilegheit,“ segir Friðbert sem býst við lífi og fjöri í hverjum sal Heklu við Laugarveg.

Hin 245 hestafla Skoda Octavia RS245 er kraftmesta Octavian sem …
Hin 245 hestafla Skoda Octavia RS245 er kraftmesta Octavian sem framleidd hefur verið.
VW T-Roc hefur verið beðið með eftirvæntingu og hann verður …
VW T-Roc hefur verið beðið með eftirvæntingu og hann verður til sýnis hjá Heklu á Laugavegi.
mbl.is