Fær fimm nýja Kia Niro

Starfsmenn TM við nýju bílana.
Starfsmenn TM við nýju bílana.

TM hefur fengið afhenta fimm nýja Kia Niro tengiltvinnbíla (PHEV). Þeirr verða notaðir fyrir tjónaþjónustu fyrirtækisins.

„Þessir nýju Kia Niro tengiltvinnbílar fyrir tjónaþjónustu TM eru liður í því að ná markmiðum félagsins til 2030 um lækkun á kolefnisfótspori. TM er aðili að yfirlýsingu Festu og Reykjavíkurborgar um loftlagsmál og væntir þess að nýir bílar og hleðslustöðvar munu verða mikilvægur þáttur í að ná árangri í þessum efnum,“ segir Óskar Baldvin Hauksson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs TM, í tilkynningu.

Kia Niro PHEV er með 58 km rafaksturdrægi við bestu aðstæður. Eyðslan í blönduðum akstri er frá 1,3 lítrar/100 km og CO2 losun er einungis 29 g/km. Bíllinn er með 1,6 lítra bensínvél og rafmótor en samanlagt skilar tengiltvinnvélin  141 hestafli og hámarkstog er 265 Nm.

„Það hefur verið mikil sala á tengiltvinnbílum síðustu mánuði enda góður kostur fyrir fyrirtæki sem og einstaklinga, umhverfismildir og hagkvæmir. Við finnum fyrir miklum áhuga á tvinnbílum okkar sem kemur ekki á óvart enda hægt að keyra á rafmagni allt að 58 km við bestu aðstæður en síðan tekur bensínvélin við. Það má segja að þarna sameinist það besta úr báðum heimum,“ segir Þorgeir Pálsson, sölustjóri Kia hjá Öskju.

mbl.is