Mercedes-Benz frumsýnir pallbíl

Pallbíllinn Mercedes-Benz X-Class.
Pallbíllinn Mercedes-Benz X-Class.

Nýr Mercedes-Benz X-Class verður frumsýndur hjá Bílaumboðinu Öskju nk. laugardag klukkan 12-16.

Bíllinn verður frumsýndur bæði hjá Mercedes-Benz fólksbílum að Krókhálsi 11 og einnig í húsnæði atvinnubíla að Fosshálsi 1. Á Fosshálsi býðst atvinnumönnum að skoða vinnuþjarkinn X-Class og fá kynningu frá sérfræðingum Arctic Trucks á breyttum útgáfum af bílnum. Á Krókhálsi verður X-Class ásamt öllum fólksbílaflota Mercedes-Benz.

Í tilkynningu segir að X-Class hafi verið beðið með mikilli eftirvæntingu enda sérlega spennandi pallbíll, sá fyrsti frá Mercedes-Benz. X-Class marki raunar tímamót því hér sé  kominn fyrsti lúxusbíllinn í pallbílaflokki. Hann sé búinn meiri lúxus í innanrýminu en venja sé  í þessum flokki bíla.

„Mercedes-Benz hefur lagt sig fram við að gera bílinn sérlega góðan hvað varðar aksturseiginleika og þægindi eins og einkennir bíla frá lúxusbílaframleiðandanum. Hönnun pallbílsins þykir hafa tekist mjög vel, hann er kraftalegur en um leið með fallegar línur.  X-Class hefur burðargetu upp á rúmlega 1 tonn og dráttargetu upp á 3,5 tonn. Bíllinn er fjórhjóladrifinn og með hátt og lágt drif sem nýtist sérlega vel fyrir erfiðar akstursaðstæður,“ segir í tilkyningu um frumsýninguna.

X-Class kemur á 30 tommu dekkjum en Arctic Trucks mun í samstarfi við Öskju framkvæma 33 og 35 tommu breytingar á X-Class ef þess er óskað og mun fyrirtækið annast alla þjónustu fyrir þá kaupendur sem vilja slíkar breytingar.

X-Class er fáanlegur í þremur útgáfum með aflmiklum 2,3 lítra dísilvélum. Sú stærri skilar 190 hestöflum og togar 450 Nm en sú minni skilar 163 hestöflum og með henni er bíllinn 10,9 sekúndur úr kyrrstöðu í hundraðið.  Fljótlega verður hægt að panta X-Class með stærri V6 dísilvél sem skilar allt að 255 hestöflum og togar 550 Nm.

mbl.is