BL kynnti nýjan Duster

Bílaumboðiðð BL kynnti nýja og endurhannaða útgáfu af sportjeppanum Dacia Duster um nýliðna helgi í höfuðstöðvum sínum að Sævarhöfða. Meðal breytinga, sem gerðar hafa verið á Duster, má nefna nýjan og öflugri undirvagn til að auka torfærugetuna, en einnig hefur verið skerpt á útlínum og ásýnd bílsins til vitnis um bætta getu. Auk þess hefur ýmsu verið breytt í farþegarýminu til að auka þægindi ökumanns og farþega.

Duster hefur fengið nýja vélarhlíf með skarpari línum, nýtt grill og nýja hönnun aðalljósa ásamt LED-dagljósum auk þess sem efri lína framrúðunnar hefur verið hækkuð til að auka rýmistilfinningu farþeganna. Þá hafa þakbogarnir verið lengdir og er Duster nú auk þess fáanlegur á 17” álfelgum. Helsta breytingin að aftan eru alveg ný ferköntuð afturljós sem ná út á jaðar beggja hliða.

Ný ásýnd í farþegarými

Farþegarýmið hefur fengið nýja innréttingu, hljóðeinangrun hefur verið aukin, bæði frá vél og ytri umhverfishljóðum auk þess sem hljómgæði afþreyingarkerfisins hafa verið bætt með nýjum hátölurum. Bíllinn er búinn alveg nýjum og þægilegri sætum og hönnun og staðsetning stjórntækja hefur verið breytt.

Meðal annars er kominn nýr og stærri fjölnotaskjár á lóðréttan miðjustokkinn sem tengist bakkmyndavélinni. Þá hefur handbremsan verið færð ásamt 4WD-hnappnum til að auka geymslupláss. Hægt er að stilla stýrishjólið á tvo vegu (upp/niður og að/frá) og stillingar á ökumannssætinu eru nú fleiri en áður auk þess sem armpúða hefur verið bætt við hægra megin. Einnig hefur hönnun höfuðpúðanna að aftan verið breytt til að auka sýn ökumanns um afturrúðuna. Undir aftursætin hefur einnig verið útbúin ný geymsla sem er góð viðbót við 467 lítra farangursgeymsluna sem stækka má í allt að 1.623 lítra með því að fella niður bak aftursætanna.

Bættir aksturseiginleikar

„Sem fyrr eru 210 mm undir lægsta punkt á Duster sem skapað hafa rómaða aksturseiginleika á fábrotnum vegum eins og þeim sem ferðalangar þekkja á hálendi Íslands. Til að bæta aksturseiginleikana enn frekar er nýr Duster búinn nýrri rafdrifinni stýrisvél sem bregst betur og nákvæmar við en áður og auðveldar ökumanni akstur við krefjandi aðstæður,“ segir í tilkynningu.

Mikill staðalbúnaður og gott verð

Nýr Duster er mjög vel búinn staðalbúnaði eins og fráfarandi gerð bílsins sem hægt er að kynna sér á vef BL. Meðal nýunga sem bætt hefur verið við eru brekkustjórn (Hill Descent Control) og brekkuaðstoð (Hill Start Assist). Brekkustjórn heldur bílnum á öruggum hraða á leið niður brattar og erfiðar brekkur og vinnur m.a. með fjórhjóladrifinu til að tryggja hámarksstöðugleika. Brekkuaðstoðin hins vegar tryggir að bíllinn renni ekki aftur á bak þegar ekið er af stað upp bratta brekku. Einnig tryggja kerfin öruggari akstur í veghalla. Þá er nýr Duster einnig búinn áttavita og Start/Stopp hnappi, en einnig er hægt að fá Duster með lyklalausu aðgengi sem m.a. aflæsir bílnum þegar ökumaður kemur upp að bílnum. Bíllinn er einnig búinn vistaksturstakka (Eco2) sem ökumaður notar til að hámarka eldsneytisnýtingu sportjeppans sem eins og áður er búinn hinni þaulreyndu 110 hestafla dísilvél frá Renault. Þá mun BL einnig bjóða Duster með nýrri 125 hestafla 1,2 l Tce-bensínvél. Lyklalausa aðgengið fylgir Prestigeútgáfu Duster auk sjálfvirkrar miðstöðvar með loftkælingu. Einnig er Prestige búinn Multiview myndavélakerfi og 17“ álfelgum og hægt er að panta bílinn með leðursætum.

Með bensínvél kostar Duster frá 3.490 þúsundum krína og frá 3.690 þúsundum króna með dísilvél.

mbl.is