Flytur sýningarsali Opel og SsangYong

Hátíð verður hjá Bílabúð Benna á laugardag.
Hátíð verður hjá Bílabúð Benna á laugardag.

Starfsmenn Bílabúðar Benna hafa staðið í ströngu og lýkur atinu með opnun sýningarsala fyrir Opel, SsangYong og notaða bíla á nýjan stað.

Af þessu tilefni verður vegleg opnunarhátíð haldin  í nýju salarkynnunum á Krókhálsi 9, laugardaginn 17. febrúar klukkan 12 til 16.

Þar verður  nýr bíll frá  Opel frumsýndur, Opel Crossland X. Ennfremur verður efnt til svonefnds milljónaleiks en þeir sem mæta á opnunarfagnaðinn geta unnið 1.000.000 kr. innborgun á nýjan bíl hjá Bílabúð Benna.

Þá geta gestir tekið mynd í nýja salnum og  sent hana inn á Instagram. Geta þeir hlotið
gjafabréf í Smáralind í verðlaun.

Veitingar sem meistarakokkar töfra fram verða veittar og ís frá Ísleifi heppna búinn til á staðnum.

mbl.is