Þrátt fyrir að hafa minnkað slagrými vélarinnar, fækkað strokkum hennar og bætt við hverfilblásara til að bæta aflið dugar það ekki til að bjarga BMW M3-bílnum. Hann losar eftir sem áður gróðurhúsaloft umfram nýjustu kröfur.
Þess vegna hefur BMW ákveðið að slaufa bílnum og hætta framleiðslu hans með öllu.
Þau eru ekki mörg BMW-módelin sem höfða jafn sterkt til bílaáhugamanna og M3. Hann kom til sögunnar á níunda áratug síðustu aldar og hefur verið smíðaður allar götur síðan. Smíðinni verður hætt í ágúst á sumri komanda.
M3 er með þessu fyrsta módelið sem verður fórnarlamb nýrra krafna um losun gróðurhúsalofts. Nýjar aðferðir til prófunar og mælingar þess (WLTP) þykja fullstrangar til að gerlegt sé að reyna að bæta bílinn til að hann standist þær.
WLTP-prófin gilda á heimsvísu og koma í stað evrópsku prófunarreglurnar NEDC. M3 er fjögurra dyra útgáfa af M4 og stenst hann ekki losunarkröfur samkvæmt forsendum WLTP prófanna.
Samkvæmt NEDC-mælingum fer M3-bíllinn með aðeins 0,83 lítra af eldsneyti í blönduðum akstri. Við það losar hann hins vegar 194 grömm af koltvíildi á hverjum eknum kílómetra.
Það er einkum og sér í lagi sótagnalosun sem mæðir á M3 gagnvart WLTP-prófinu. Til að standast þær þyrfti að koma til alveg ný sótagnasía sem hefði í för með sér að bíllinn þyrfti að fara í gegnum tegundarvottunarferli.
Það heillar ekki forsvarsmenn BMW, að sögn breska tímaritsins Autocar. Og þýski bílsmiðurinn verður nefnilega klár með alveg nýja kynslóð af 3-seríunni í október í haust. Því verður smíði M3 stöðvuð, allavega í bili. Allavega þarf að bíða til 2020 eftir að M3 renni af færiböndum á ný. Sá verður alveg nýrrar kynslóðar
M4-bílnum verður hlíft og til að standast kröfur WLTP fær hann fljótt nýju sótagnasíuna og verður sendur í nýtt tegundarviðurkenningarferli.
Fulltrúar BMW segja við Autocar að nýju sótsíurnar eigi ekki að bitna á afli M4-bílsins. Hann muni eftir sem áður aðeins þurfa 4,1 sekúndu til að komast í hundraðið úr kyrrstöðu með DKG-sjálfskiptingunni.
agas@mbl.is