Einstakur Mini í tilefni brúðkaupsins

Breski bílsmiðurinn Mini fagnar brúðkaupi Harrýs Bretaprins og Meghan Markle á laugardag  með einstakri og sérmerktri útgáfu á Mini Hatch, sem sérmerktur hefur verið í anda brúðkaupsins.

Bíllinn verður þó ekki færður ungu brúðhjónunum að gjöf heldur til velferðarsjóðs sem Harrý og Meghan tilnefndu.

Brúðhjónin völdu velferðarsjóð sem starfar í þágu HIV-smitaðra barna, The Children’s HIV
Association (CHIVA). Sjóðurinn mun setja þennan einstaka bíl á almennt uppboð og nýta
söluandvirðið til góðgerðarmála í þágu skjólstæðinga sinna.

„Mini er eitt höfuðdjásna í sögu breskrar bílaframleiðslu og það er okkur sönn ánægja að minnast sögunnar og heiðra brúðhjónin um leið með þessum hætti,“ sagði Oliver Heilmer, yfirhönnuður Mini, þegar tikynnt var um gjöfina.

Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum fer það ekki á milli mála, enda fá ýmsar persónulegar sérmerkingar ásamt rauða, hvíta og bláa litnum, einkennislitum breska fánans, að njóta sín til fulls, bæði í farþegarými og ytra útliti. Bílþakið var málað í litum þjóðfánans, í hurðafalsi framdyranna stendur „Just Married“ og upphafsstafi brúðhjónanna er einnig að finna á bílnum auk fleiri skreytinga.

Eins og áður segir mun góðgerðarsjóðurinn fá bílinn afhentan og bjóða hann upp að loknu
brúðkaupi. Sá eða sú sem hæst býður eignast einstakan Mini, þann eina í heiminum.

mbl.is