Hekla hefur innkallað níu Volkswagen-bifreiðar sem eru af árgerð 2018. Ástæða innköllunar er sú að framleiðslugalli í stýringu fyrir höfuðpúða á framsætum getur valdið því að höfuðpúðinn losni ef bíllinn lendir í árekstri.
Þetta kemur fram á vef Neytendastofu.
Þar segir, að skipta þurfi um stýringuna sem læsi höfuðpúðum á báðum framsætum. Á Íslandi á innköllunin við um átt bifreiðar af gerðinni Volkswagen Passat og einn Volkswagen Golf. Bréf verður sent til eigenda bílana á næstu dögum.
Neytendastofa hvetur bifreiðaeigendur til að fylgjast vel með hvort að verið sé að innkalla þeirra bifreiðar og hafa samband við umboðið ef þeir eru í vafa.