Fáðu Citroën C4 Cactus heim til þín

Til þess að hverjum og einum nýtist tíminn sem best hefur Brimborg ákveðið að fara nýja leið við kynningu og markaðssetningu Citroenbíla.

Býður umboðið nú þau þægindi að koma með nýja Citroen C4 Cactus heim til fólks í reynsluakstur!

„Þú ákveður með söluráðgjafa okkar hversu langan tíma þú þarft. Þessi þjónusta er í boði fyrir höfuðborgarbúa og íbúa Akureyrar,“ segir Citroen-umboðið.

Hægt er að hafa samband við söluráðgjafa Brimborgar í gegnum citroen.is eða í síma 515 7040.

Nýtt fjöðrunarkerfi C4 Cactus hefur vakið athygli og þykir byltingarkennt hvað mýkt og stöðugleika varðar. Er nýr C4 Cactus fyrstur Citroen-bíla sem er búinn þeim þægindum.

„Tæknin kallast Progressive Hydraulic Cushions og skilar þeirri tilfinningu að farþegum finnst sem þeir svífi á skýi. Auk þessa er nýr Citroen C4 Cactus búinn nýjum Advanced Comfort sætum og undurþýðri sjálfskiptingu. Niðurstaðan er ótrúleg þægindi. Citroen þægindi,“ segir í tilkynningu.

mbl.is