Hyundai og Audi þróa vetnistækni saman

Hyundai Motor Group í Suður-Kóreu og Audi AG í Þýskalandi undirrituðu nýlega
langtímasamning um samstarf við frekari þróun vetnistækninnar sem orkugjafa í
næstu kynslóðum nýrra bíla beggja framleiðenda ásamt Kia, dótturfyrirtækis Hyundai, og
Volkswagen, móðurfyrirtækis Audi.

 Samstarfið tekur í senn til þróunar og framleiðslu á sameiginlegum íhlutum og tæknilausnum og er eitt helsta markmið samningsins að flýta þróun og framleiðslu á mengunarlausum bílum í þágu aukinnar sjálfbærni og umhverfisins.

Fyrsta skrefið í samstarfinu er að báðir samningsaðilar veita gagnkvæman aðgang að
núverandi tæknilausnum fyrirtækjanna, þar á meðal þeim sem búa að baki þróun og
framleiðslu Hyundai ix35 og Nexo, en enginn bílaframleiðandi hefur jafn langa reynslu af
tækninni og Hyundai sem hóf almenna sölu rafknúns vetnisbíls í ársbyrjun 2013, að því er fram kemur í tilkynningu um samstarf þetta.

Um 500 rafknúninr vetnisbílar af gerðinni ix35 eru nú umferð í átján Evrópulöndum, þar á meðal tíu á Íslandi. Hjá Volkswagen-samsteypunni ber Audi ábyrgð á þróun vetnistækni samstæðunnar og fær fyrirtækið nú þegar fullan aðgang að tæknilausnum og íhlutum Hyundai á vetnissviði.

Frekara samstarf í deiglunni

Hyundai Motor Group og Audi hafa þegar sammælst um að leita frekari tækifæra í samstarfi
sínu en núverandi samningur kveður á um. Meðal annars er ætlunin að skoða sameiginlega
innleiðingu á iðnaðarstöðlum á sviði vetnistækninnar sem hvatt getur til aukinnar
nýsköpunar á þessu sviði og þar með frekari þrón og framleiðslu á rafknúnum vetnisbílum
sem hagkvæms valkosts á almennum bílamarkaði.

Af hálfu Hyundai Motor Group gefur samstarfssamningurinn við Audi fyrirtækinu aukin tækifæri til að styrkja samkeppnishæfni Hyundai enn frekar á tæknisviði rafknúinna vetnisbíla, ekki síst innan dótturfyrirtækisins Hyundai Mobis sem leiðir þróun og framleiðslu íhluta fyrir vetnistæknina fyrir Hyundai og Kia.

mbl.is