Kynna þægilegri og vandaðri Tucson

Hyundai á Íslandi kynnir á morgun, laugardaginn 8. september, nýja og uppfærða útgáfu af Tucson sem er einn af vinsælustu sportjeppum framleiðandans.

Bíllinn hefur fengið uppfærða og snarpari 1,6 lítra og 136 hestafla dísilvél með forþjöppu en auk þess er hægt að fá bílinn með nýrri, sk. „mildri tvinntækni“ sem Hyundai hefur valið að frumsýna með Tucson.

Við 1,6 lítra dísilvél Tucson er ný sjö gíra DCT-sjálfskipting sem dregur úr eldsneytiseyðslu um 0,9 lítra að meðaltali á hverja hundrað kílómetra, þar sem hún fer úr 6,1 l í 5,2 l við blandaðan akstur. Þá er bíllinn ennfremur kominn með HTRAC-fjórhjóladrif sem upphaflega var hannað fyrir lúxusmerkið Genesis.

Mild tvinntækni

Tucson er fyrsti bíll Hyundai sem fáanlegur er með Mild Hybrid-tækninni, sem er 48 volta, og 12kW hjálparrafmótor sem hefur það hlutverk fyrst og fremst að draga úr eldsneytisnotkun og losun koltvísýrings. Tvinnækni Tucson er frábrugðin tækni hefðbundinna tvinnbíla að því leyti að rafmótor Tucson er ekki hugsaður sem aflgjafi sem vinnur stöðugt með sprengihreyflinum heldur eingöngu sem hjálparaflgjafi við vissar kringumstæður þegar reynir á dísilvélina og eldsneytiseyðslan eykst. Þá kemur 12kW hjálparrafmótorinn inn til að sporna við aukinni eyðslu, að því er fram kemur í tilkynningu.

Nýtt mælaborð og miðjuskjár

Í farþegarými Tucson blasir við breytt hönnun þar sem nýtt mælaborð og 8“ snertiskjár eru mest áberandi auk leðuráklæða og textílefna sem ljá heildaryfirbragði bílsins fágaðri ásýnd. Á þægindasviðinu skapar rafstýrð handbremsa meira pláss á miðstokknum fyrir þráðlausa hleðslustöð fyrir snjallsíma. Þá auðveldar 360° umhverfismyndavélakerfið ökumanni að leggja bílnum í stæði auk þess sem leiðsögukerfið styðst við þrívíddarkort og fimm ára endurgjaldslausa áskrift að LIVE Services sem veitir m.a. aðgang að upplýsingum um veður, umferð og fleira.

Að lokum má nefna að Tucson er búinn nýjustu akstursöryggis- og aðstoðartækni Hyundai, svo sem sjálfvirkri hemlun, akreinavara, blindhornsviðvörun og annarri öryggistækni eins og hægt er að kynna sér nánar á morgun, laugardag, hjá Hyundai í Garðabænum milli kl. 12 og 16.

mbl.is