Fullt hús jeppa og jepplinga

Fullt hús jeppa og jepplinga verður í Heklu á morgun laugardaginn 15. september, frá klukkan 12 til 17.

Þá hefjast svonefndir jeppa- og jepplingadagar í höfuðstöðvunum að Laugavegi 170.

„Úrval glæsilegra bíla frá Volkswagen, Audi, Skoda og Mitsubishi verður til sýnis og frábær tilboðsverð í gangi. Aukahlutapakki fylgir öllum nýjum jeppum og jepplingum út september,“ segir í tilkynningu.

Þar segir ennfremur, að í boði verði léttar veitingar og að hinir ungu og efnilegu tónlistarmenn Jói P. og Króli taki lagið klukkan 14. 

mbl.is