Baráttumál greinarinnar mörg

Óskar Sigvaldason.
Óskar Sigvaldason. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Óskar Sigvaldason hefur starfað hjá Borgarverki alla sína starfsævi eða frá fjórtán ára aldri. Í fyrstu sem sumarstarfsmaður en síðar í föstu starfi. Hann er viðskiptafræðingur og ötull í baráttumálum greinarinnar. Í dag starfar hann sem formaður Félags vinnuvélaeigenda. 

Hvað getur þú sagt okkur um þá starfsemi?

„Félag vinnuvélaeigenda var stofnað árið 1953 og hefur átt aðild að Samtökum iðnaðarins frá 1993. Félagið hefur unnið að mörgum og fjölbreyttum baráttumálum í gegnum tíðina er varða framgang greinarinnar. Helstu áherslumál um þessar mundir varða m.a. endurmenntun atvinnubílstjóra, menntamál tengd jarðvinnuverktöku og nýliðun í greininni.“

Nýliðun mikilvæg

Spurður um nýliðun segir Óskar að hún sé of lítil. „Við verðum að finna leiðir til að breyta því. Sömuleiðis skortir okkur verklegt og bóklegt nám sem tengist jarðvinnuverktöku. Við þurfum að tengja jarðvinnuverktöku betur inn í menntakerfið m.a. til að stuðla að nýliðun í faginu.“

Ríkir stuðningur stjórnvalda við ykkar baráttumál?

„Félagið okkar hefur rödd og þar af leiðandi einhver áhrif. Við komum sjónarmiðum félagsins á framfæri, s.s. í gegnum umsagnir við lagafrumvörp og fleira. Oft er tekið tillit til okkar sjónarmiða. Sömuleiðis vinnast ýmis sameiginleg baráttumál innan Samtaka iðnaðarins.

Stjórnvöld vinna um þessar mundir að því að búa til hvata til orkuskipta, sem er jákvætt og félagsmenn vilja vinna að jákvæðri þróun í þessum efnum. Tækniframþróun er hröð en þó er það svo að ekki er hægt að fá stærri ökutæki, vinnuvélar og sum iðnaðartæki þannig að þau nýti endurnýjanlega orkugjafa. Það er ekki tæknilega mögulegt í nánustu framtíð fyrir jarðvinnuverktaka að bregðast við hvötum sem stjórnvöld hafa talað fyrir. Félagið hefur ásamt Samtökum iðnaðarins talað fyrir því að hvatarnir verði að vera þannig að raunhæft sé að framfylgja þeim og gerðar séu undanþágur, þegar kemur að auknum gjöldum o.fl., vegna þeirra sem hafa ekki möguleikann á orkuskiptum.“

Uppbygging mikil í greininni

Hvernig hefur tíðin verið að undanförnu hjá ykkur?

„Það er mikið er að gera hjá jarðvinnuverktökum núna. Verktakar hafa verið að endurnýja tæki og byggja fyrirtækin upp til að geta mætt aukningu í eftirspurn. Frá 2014 hefur rekstrarumhverfi verið að lagast. Það er meira framboð af verkefnum samhliða aukinni uppbyggingu í samfélaginu.“

Hvað er það nýjasta á markaði?

„Það nýjasta núna er aukin sjálfvirkni vinnuvéla. GPS-búnaður sem hefur verið keyptur sem aukabúnaður í vinnuvélar og settur í eftir á, er að koma sem staðalbúnaður frá framleiðendum. Við það eykst sjálfvirkni, gröfur geta unnið eftir hönnun og vélin fer ekki dýpra en á að grafa. Þá er ekki grafið dýpra en þarf og vinnusparnaður verður þannig til í ferlinu.

Eins eru eftirlitskerfi sem gera stjórnendum fyrirtækja kleift að fylgjast með verkum og vélum í gegnum netið.“

Með höfuðstöðvar í Borgarnesi

Hvernig lýsir þú Borgarverki?

„Fyrirtækið var stofnað árið 1974 í Borgarnesi. Fastir starfsmenn eru 72 en þeim fjölgar talsvert yfir sumarið þegar mesti álagstíminn er. Höfuðstöðvar Borgarverks eru í Borgarnesi en einnig er rekin starfsstöð á Selfossi.

Helstu verkefni sem í gangi eru um þessar mundir eru yfirlagnir fyrir Vegagerðina á Norðurlandi, Vesturlandi og Suðurlandi, styrking Biskupstungnabrautar, styrking vega á Norðausturlandi, vegur um Hvolsdal í Dalasýslu, Uxahryggjavegur, Götuás-Gröf, gatnagerð á Hvanneyri í Borgarbyggð, gatnagerð á Hagalandi á Selfossi, gamli miðbærinn á Selfossi og Grænamörk, endurnýjun lagna á Selfossi.“

Óskar segir að stærstu viðskiptavinir fyrirtækisins séu Vegagerðin, Borgarbyggð, Árborg, Selfossveitur og Orkuveita Reykjavíkur.

Hvernig sérðu framtíðina?

„Almennt séð lítur framtíðin vel út. Stjórnvöld tala um að auka við fjármagn í innviðauppbyggingu. Mikið er að gera í uppbyggingu á íbúðarhúsnæði. Þetta þýðir aukin verkefni fyrir jarðvinnuverktaka.“

Tæknibreytingar eru tækifæri

Hvernig er að starfa á markaði sem er svona sveiflukenndur?

„Í okkar bransa er mjög erfitt að gera áætlanir langt fram í tímann. Við sjáum í besta falli eitt ár fram í tímann, því þarf að fara varlega. Það koma alltaf samdráttartímabil sem fyrirtækin þurfa að geta tekist á við.“

Hvað þykir þér gaman að gera utan starfstíma?

„Frítíma er að mestu varið með fjölskyldunni. Ég hef áhuga á ferðamennsku og ferðast nokkuð um landið á jeppa og er einnig með fjórhjól.“

Óttastu tæknibreytingar eða eru þær tækifæri?

„Tæknibreytingar eru tækifæri fyrir verktaka.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: