Stóra ljósmyndakeppni Bílablaðs Morgunblaðsins heldur áfram og er núna tekið við myndum í keppni októbermánaðar.
Rétt eins og í ágúst og september fer keppnin fram með kosningu á Facebook og fá höfundar þriggja vinsælustu myndanna í verðlaun bón- og hreinsiefnispakka frá Meguiar's í boði Málningarvara.
Tíu vinsælustu myndir hvers mánaðar fara í úrslit og mun dómnefnd sérfræðinga koma saman í desember til að velja þá mynd sem hlýtur aðalverðlaunin: ferð fyrir tvo á bílasýninguna í Genf í boði Toyota á Íslandi.
Efnistök eru frjáls en keppninni er ætlað að fagna bílaástríðu Íslendinga.
Meðal þeirra mynda sem bárust í keppnina í september var þessi fallega mynd af Toyota jeppa í vetrarfærð.
Helga Björnsdóttir
Reglur keppninnar eru sem hér segir:
- Fyrst verður haldin forkeppni í fjórum umferðum: í ágúst, september, október og nóvember
- Kosning fer fram á Facebook-síðu Bílablaðs Morgunblaðsins: Facebook.com/bilafrettir og höfundar þeirra þriggja mynda sem fá flest „like“ í hverjum mánuði fá verðlaun frá Meguiar's
- Þær tíu myndir sem fá flest „like“ í hverjum mánuði fara í hóp úrvalsmynda sem lagðar verða fyrir sérstaka dómnefnd sem velur bestu ljósmyndina í desember
- Höfundur bestu ljósmyndarinnar fær í verðlaun ferð fyrir tvo á alþjóðlegu bílasýninguna í Genf í mars næstkomandi
Leiðbeiningar fyrir ljósmyndara:
- Ljósmyndir skal senda í tölvupósti á bill@mbl.is
- Frestur til að skila inn myndum í keppni mánaðarins er til kl. 23:59 laugardaginn 6. október og hefst kosning að morgni sunnudagsins 7. október.
- Myndina skal senda sem viðhengi, á jpg-sniði og skal myndin vera í hámarksupplausn.
- Fullt nafn rétthafa myndarinnar og símanúmer skal fylgja með auk lýsingar á myndefninu
- Hver þátttakandi getur aðeins sent inn eina mynd í hverjum mánuði
Þrír efstu í október fá veglega gjafapakka frá Málningarvörum.
Nánari skilmálar:
- Bílablað Morgunblaðsins áskilur sér rétt til endurbirta, án endurgjalds, þær myndir sem berast í keppnina
- Starfsmönnum Árvakurs og fjölskyldum þeirra er ekki heimilt að taka þátt í keppninni
- Blaðið áskilur sér rétt til að hafna öllum innsendum myndum