Volvo V60 „Bíll ársins“ á Íslandi

Gísli Jón Bjarnason, sölustjóri hjá Brimborg, tekur við aðalviðurkenningunni, gripnum …
Gísli Jón Bjarnason, sölustjóri hjá Brimborg, tekur við aðalviðurkenningunni, gripnum fyrir Bíl ársins, úr hendi Maríu Jónu Magnúsdóttur, framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins. mbl.is/Haraldur Guðjónsson Thors

Bíll ársins á Íslandi í ár er Volvo V60. Það er niðurstaða Bandalags íslenskra bílablaðamanna (BÍBB) sem stendur á ári hverju fyrir valinu. Var tilkynnt um úrslitin við athöfn í húsnæði Blaðamannafélags Íslands.

Alls var 31 bíll gjaldgengur í forvalinu, en bílarnir þurfa annaðhvort að vera nýir eða af nýrri kynslóð. Forvalsnefnd fjögurra aðila í Bandalagi íslenskra bílablaðamanna valdi 12 þeirra í úrslit í fjórum flokkum þessu sinni, eftir að hafa prófað þá alla. Flokkarnir voru: minni fólksbílar, stærri fólksbílar, minni jeppar og stærri jeppar.

Það kom svo í hlut 9 manna valnefndar að lokaprófa þessa tólf bíla og var það gert sem fyrr á Kvartmílubrautinn í Kapelluhrauni. Að prófunum loknum var þeim svo gefin einkunn hvað 12 mismunandi þætti þeirra varðar.

Ceed, T-Roc og Touareg unnu sína flokka

Sigurvegari í flokki smærri fólksbíla reyndist Kia Ceed, í öðru sæti Mercedes Benz A-Class og í því þriðja Ford Focus.

Í flokki stærri fólksbíla stóð efstur á blaði Bíll ársins, þ.e. Volvo V60, í öðru sæti var Alfa Romeo Giulia og Kia Stinger í því þriðja.

Í flokki minni jeppa trónaði hæst Volkswagen T-Roc, í öðru sæti varð Skoda Karoq og Hyundai Kona í því þriðja.

Í flokki stærri jeppa var Volkswagen Touareg sigurvegarinn, Volvo XC40 í öðru sæti og BMW X3 í því þriðja. Í þessum síðastnefnda flokki var minnsti munur á milli þeirra þriggja bíla sem náðu í úrslit, eða aðeins 27 stig.

Nokkrir yfirburðir Volvo V60

Bíll ársins að þessu sinni, Volvo V60, fékk 807 stig í einkunnagjöf dómnefndar og hafði sigur með þó nokkrum yfirburðum. Þegar stig allra 12 bílanna lágu fyrir kom í ljós að næstflest stigin fékk Alfa Romeo Giulia með 782 stig. Langt er síðan bíll frá Alfa Romeo hefur verið í vali á Bíl ársins. Þriðju flestu stigin hlaut svo Volkswagen Touareg, eða 776 stig. Í fjórða sætinu reyndist svo Kia Ceed með 773 stig og í því fimmta Volvo XC40 með 767 stig.

mbl.is