Toyota sýnir úrvalið

Toyota efnir til októbersýningar á morgun, laugardag.
Toyota efnir til októbersýningar á morgun, laugardag. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Svonefnd októberfest sýning verður haldin hjá söluaðilum Toyota um allt land á morgun, laugardaginn 6. október.

Á sýningunni verða sértilboð á öllum nýjum tvinnbílum, sérstakur vetrarpakki fylgir með völdum bílum, lúxuspakki fylgir með RAV4 og svonefndur  Invincible-pakki fylgir með Hilux.

Gestum verður boðið að smakka á bratwurst-pylsum og sérbökuðum saltkringlum.

Opið er á laugardag hjá Toyota í Kauptúni, í Reykjanesbæ, á Akureyri og Selfossi frá klukkan 12 til 16.

mbl.is